Frambjóðendur í Suðvesturkjördæmi

Í flokksvali Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi komu sex frambjóðendur fram í fyrstu þrjú sæti listans. Framboðsfrestur rann út kl 19 í dag. Kosning er bindandi í fjögur efstu sæti og raðað samkvæmt paralista. Þá verður tryggt að í einu af efstu þremur sætunum, verði einstaklingur 35 ára eða yngri.

Eftirtaldir gefa kost á sér:

Árni Páll Árnason í 1. sæti
Guðmundur Ari Sigurjónsson í 3. sæti
Margrét Gauja Magnúsdóttir í 2. sæti
Margrét Tryggvadóttir í 1.-2. sæti
Sema Erla Serdar í 2. sæti
Símon Birgisson í 2.-3. sæti