Ísland í samfélagi þjóðanna

Ísland á að reka mannúðlega utanríkisstefnu sem miðar í senn að því að styrkja stöðu Íslands á alþjóðavettvangi og leggja okkar af mörkum við úrlausn þeirra risavöxnu áskorana sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir.

Samfylkingin leggur áherslu á að Ísland beiti sér fyrir jöfnuði og mannréttindum um allan heim og sé alltaf málsvari friðar, mannúðar, jafnréttis og lýðræðis.

Sjaldan hefur verið jafn mikilvægt og nú að alþjóðasinnar snúi bökum saman, fylki sér um grunngildi opins lýðræðisþjóðfélags og standi vörð það sem áunnist hefur í alþjóðasamvinnu frá lokum síðari heimsstyrjaldar.

Gegn skaðlegri skattasamkeppni

Skaðleg skattasamkeppni og skattasniðganga alþjóðlegra stórfyrirtækja er samfélagsógn sem kallar á samstöðu og samvinnu ríkisstjórna um allan heim. Samfylkingin vill að Ísland taki virkan þátt í slíkri vinnu, beiti rödd sinni gegn skattaundanskotum og undirboðum og tali fyrir aukinni samræmingu skattlagningar fjármagns og fyrirtækja í Evrópu.