Ræðum um Palestínu

SffR boðar til opins umræðufundar þar sem grasrót Samfylkingarinnar fær að ræða hvort og hvað skuli gera til að Ísland geti lagt sitt enn frekar á lóðarskálarnir til stuðnings almennum borgurum í Palestínu.
Fundurinn fer fram fimmtudaginn 15. maí á Hallveigarstíg 1 og hefst kl: 20:00.
Þess má geta að 15. maí ber upp á Nakbadaginn, sem er minningardagur um Nakba eða Palestínuhamfarirnar, sem fólu í sér eyðileggingu palestínsks samfélags og heimalands árið 1948 og varanlegan flótta meirihluta palestínsku þjóðarinnar.
Gestir fundarins verða þau Magnea Marínósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, Dagbjört Hákonardóttir þingkona Reykvíkinga og fulltrúi Samfylkingarinnar í Utanríkismálanefnd Alþingis og Sigmundur Ernir þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Fundinum stýrir Sigfús Ómar Höskuldsson formaður SffR.