Birkir Ingibjartsson - 5. sæti

Ég er 35 ára fjölskyldufaðir búsettur í Safamýri, menntaður arkitekt og starfa sem verkefnastjóri hjá borgarskipulagi Reykjavíkur.

Skipulagsmálin eru það sem ég brenn fyrir og það er einlæg sannfæring mín að á þeim vettvangi sé lagður grunnur fyrir mörg af mikilvægust málefnum samtímans. Með góðu borgarskipulagi náum við markmiðum okkar í loftlagsmálum og í gegnum þau er hægt móta ramma til að jafna tækifæri fólks og ýta undir meiri jöfnuð í samfélaginu. 

Í starfi mínu hjá Reykjavíkurborg hef ég tekið þátt í þróun skipulags á stórum og litlum uppbyggingarsvæðum í borginni. Ég var annar af tveimur fulltrúum borgarinnar við gerð frumdragaskýrslu Borgarlínu og hef í kjölfarið haft þau verkefni sem tengjast skipulagsgerð Borgarlínu á minni könnu.

Ég tók grunnámið í arkitektúr í Listaháskóla Íslands en flutti að því loknu ásamt fjölskyldu minni til Stokkhólms þar sem við bjuggum í fimm ár. Þar lauk ég meistaranáminu og starfaði svo í kjölfarið sem arkitekt þar. Þá hef ég einnig lokið BSc prófi í umhverfis og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands. 

Á síðustu árum hafa verið stigin mörg jákvæð skref í þróun borgarinnar undir stjórn Samfylkingarinnar. Þétting byggðar er orðin hluti af meginstraumnum, Borgarlínan er komin á góðan rekspöl og nýtt aðalskipulag til ársins 2040 setur metnaðarfullan tón til næstu ára um uppbyggingu borgarinnar.

Ég hef mikla trú á þeim merkilegu og mikilvægu verkefnum sem framundan eru og vil leggja mitt af mörkum við að fylgja eftir þeirri skýru stefnu sem þegar hefur verið sett. Ég gef því kost á mér í komandi prófkjöri flokksins og óska eftir stuðningi í 5. sæti listans.

Ég trúi því að næsti áratugur verði áratugur Reykjavíkur. Mikið uppbyggingarskeið er framundan og ef vel tekst til mun íbúum, fyrirtækjum og gestum borgarinnar fjölga talsvert samhliða auknum borgarbrag. Mikilli uppbyggingu fylgir mikil ábyrgð og vil ég taka þátt í að tryggja að fyrirhuguð uppbygging verði á forsendum loftslagsmála, jöfnuðar og gæðum borgarumhverfisins

Við eigum að vera óhrædd við halda áfram á sömu braut og taka slaginn. Mikilvægum breytingum fylgja átök og við þurfum að hafa hugrekki til að standa með okkar sýn. Við verðum að ganga skýrt áfram í þá átt að losa okkur undan álögum einkabílsins. Skiptir Borgarlínan þar lykilmáli en tryggja þarf að verkefnið verði framkvæmt af sama metnaði og settur hefur verið í undirbúning framkvæmdarinnar. Við þurfum að stórbæta öryggi gangandi og hjólandi og setja þessa hópa í forgang.

Við þurfum að tryggja fjölbreytta búsetukosti og gæta þess að í nýjum hverfum verði einnig íbúðir fyrir tekjulægri hópa. Í eldri hverfum eigum við að styðja við heilbrigða endurnýjun umhverfisins. Allt snýr þetta að sjálfbærni einstakra borgarhluta og borgarinnar í heild sinni en ég trúi einnig að þessar aðgerðir snúi að gæðum byggðarinnar. Þar sem er jafnt aðgengi, fjölbreytt mann- og dýralíf, gróður og gróska er gott að vera.

Það sem ég hef fyrst og fremst fram að færa er fagþekking mín og reynsla á sviði skipulagsmála. Hjarta mitt slær fyrir Reykjavík og ég tel okkur í dauðafæri á að byggja hér upp spennandi og fjölbreytt borgarsamfélag. Við eigum að leyfa okkur að hugsa stórt en einnig þora að fylgja eftir mikilvægum og flóknum verkefnum. Listinn er langur en tækifærið er núna til að gera breytingar sem skipta máli til langrar og grænni framtíðar, því meiri borg er betri borg.