Landsfundur Samfylkingarinnar er hafinn - beint streymi frá setningarathöfn kl 17:00

Landsfundur Samfylkingarinnar hófst rétt í þessu kl 15:00 á Hotel Reykjavík Natura.

Dagskrá fundarins má finna hér: https://xs.is/landsfundur/

Heiða Björg, varaformaður Samfylkingarinnar tók fyrst til máls og lagði til Þórunni Sveinbjarnardóttur í hlutverk þingforseta og var það samþykkt með lófaklappi.

Setningarathöfn fundarins hefst síðan kl 17:00 og verður henni streymt beint: https://goo.gl/j37r9D

Mikil stemning er í hópnum og augljóst að flokksfélagar hlakka til helgarinnar saman.