Umhverfismál snerta okkur öll - Sjálfbært Ísland
Samfylkingin telur mikilvægt að byggja vöxt hagkerfisins á sjálfbærri þróun, með hagsmuni almennings og umhverfisins að leiðarljósi.
Vaxtartækifæri græna hagkerfisins verði nýtt til uppbyggingar atvinnulífs og útflutnings. Ímynd Íslands á alþjóðavettvangi taki mið af þessum áherslum. Stuðlað verði að líffræðilegri fjölbreytni á sjó og landi. Sveitarstjórnarstigið verði leiðandi í framkvæmd umhverfisstefnunnar með stuðningi ríkisins.
Samfylkingin leggur áherslu á að:
• Verja auðlindir og lífríki hafsins fyrir súrnun sjávar og loftslagsvá.
• Nýting orkuauðlinda byggi á rammaáætlun og ósjálfbær nýting orku verði hindruð.
• Stefna Samfylkingarinnar um Græna hagkerfið verði leiðarvísir um aðgerðir í umhverfismálum.
• Horfið verði frá nýtingaráformum jarðefnaeldsneytis í íslenskri lögsögu.
• Stofnaður verði þjóðgarður á miðhálendinu.
Veldu málefni undir umhverfismálin
Sjá öll málefninStefnan um Græna hagkerfið er fyrsta heildstæða stefnumótunin um sjálfbært, hagsælt samfélag. Henni fylgdi skýr aðgerðaáætlun og verkaskipting sem ekki hefur verið staðið við.
Samfylkingin leggur áherslu á að:
- Ríkið verði fyrirmynd og skapi aðstæður fyrir grænt hagkerfi.
- Hagrænum hvötum verði beitt í þágu umhverfisvænna sjálfbærra lausna.
- Mengunarbótareglan verði grunnur að gjaldtöku.
- Unnið verði gegn hvers kyns mengun