Nýr formaður félags Ungra jafnaðarmanna

Nikólína Hildur Sveinsdóttir tók við embætti formanns Ungra jafnaðarmanna á landsþingi hreyfingarinnar í Hafnarfirði um helgina. Hún tekur við embættinu af Þórarni Snorra Sigurgeirssyni.

Yfirskrift þingsins var „Herör gegn fátækt og ójöfnuði“

Í framkvæmdastjórn voru kjörin: Óskar Steinn Ómarsson Jónínuson varaformaður og viðburðastjóri, Marinó Örn Ólafsson gjaldkeri, Sonja Björg Jóhannsdóttir ritari, Margrét Steinunn Benediktsdóttir alþjóðaritari, Inger Erla Thomsen upplýsinga-og útgáfustjóri, Nanna Hermannsdóttir málefna-og fræðslustjóri og Jón Hjörvar Valgarðsson framhaldsskólafulltrúi.

Kjörnir meðlimir og varamenn í miðstjórn eru eftirfarandi: Agnes Rún Gylfadóttir, Alexander Harðarson, Alondra Silva Muños, Andrea Dagbjört Pálsdóttir, Ari Guðni Hauksson, Auður Alfa Ólafsdóttir, Ágúst Arnar Þráinsson, Colin Arnold Dalrymple, Ída Finnbogadóttir, Ingiríður Halldórsdóttir, Margrét Helga Magnúsdóttir, Róbert Gíslason, Sigurður Ingi R. Guðmundsson, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Þorgrímur Kári Snævarr og Þórarinn Snorri Sigurgeirsson.