– Samkomuhúsinu í Sandgerði - Suðurnesjabæ

Flokksstjórnarfundur í Suðurnesjabæ

Flokksstjórnarfundur verður haldinn í Samkomuhúsinu í Sandgerði í Suðurnesjabæ laugardaginn 10. október.

Boðið verður upp á rútuferð fyrir alla félaga frá Reykjavík kl. 9:30 frá bílastæðinu við Hús verslunarinnar. Rútan mun keyra beint í Reykjanesbæ á fund Verkalýðsmálaráðs sem hefst kl. 10:30. Gestur fundarins er Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ ásamt öðrum góðum gestum og munu þau ræða saman um stöðu kjarasamninga. Þar næst keyrir rútan að Samkomuhúsinu í Sandgerði þar sem flokksstjórnarfundurinn verður haldinn.

Heimferð verður til Reykjavíkur kl. 23 eftir skemmtun og mat.

Þú getur skráð þig í rútuna um leið og þú skráir þig á fundinn: https://forms.gle/FCdfTK1C6cbkGQME8

Dagskrá
09:30 - Lagt af stað frá Reykjavík með rútu

10:30 - Fundur Verkalýðsmálaráðs

12:00 - Húsið opnar, skráning og hádegismatur

12:30 - Svavar Grétarsson oddviti okkar í Suðurnesjabæ býður gesti velkomna

12:40 - Fundur settur

12:55 - Ræða formanns

13:20 - Staðan í hálfleik: Ráðherrar ræða verkefnin sem hafa áunnist og áherslur seinni hálfleiks

13:50 - Samtal við salinn: þingmenn sitja fyrir svörum

14:25 - Kynningar frambjóðenda til varaformanns

14:30 - Kaffihlé og kosning- veitingar frá kvenfélaginu Gefn

15:15 - Samtal oddvita í meirihluta í sveitarstjórnum

15:30 - Kynning á málefnastarfi í aðdraganda landsfundar

15:40 - Borðavinna: hvernig vinnum við aftur 2028

16:25 - Almennar umræður

17:25 - Fundi slitið

17:25 - 23:00 - Gleðistund, kvöldmatur og skemmtiatriði

23:00 - Rúta til Reykjavíkur

Ein tillaga barst frá félögum fyrir frest og mun hún vera borin upp á fundinum, tillögunina má nálgast með því að smella hér er hægt að nálgast tillöguna.

Veisluhöld

Um kvöldið verður slegið upp Októberfest, pretzel, pylsur og sauerkraut verða á boðstólum.

Hobbitarnir frá Suðurnesjum sjá um að skemmta gestum. Dúettinn skipa þeir Ólafur Þór Ólafsson og Hlynur Þór Valsson sem eru „heimsfrægir” í Suðurnesjabæ en hafa spilað um allt land í gegnum tíðina við góðan orðstír.

Þetta er partý sem enginn vill láta fram hjá sér fara.

Kvöldverður og skemmtun kostar 7.000 og 6.000 fyrir námsmenn, lífeyrisþega og fólk á fjárhagsaðstoð greiðist inn á bk. 0111 hb. 26 rknr. 19928 - kt. 690199-2899.

Kosning varaformanns 

Óskað er eftir framboðum til embættis varaformanns Samfylkingarinnar en núverandi varaformaður, Guðmundur Árni Stefánsson, hefur óskað eftir lausn frá embættinu.

Aðeins meðlimir flokksstjórnar Samfylkingarinnar geta boðið sig fram og hafa kosningarétt. Kjörtímabilið er sá tími sem eftir er af kjörtímabili fráfarandi varaformanns, sbr. grein 7.6 í lögum Samfylkingarinnar.

Frambjóðendur sem hafa tilkynnt framboð sitt til skrifstofu með því að fylla út eyðublaðið sem er að finna hér fyrir neðan geta óskað eftir afhendingu kjörskrár með tölvupósti á skrifstofu, samfylking@samfylking.is.  

Flokksstjórn Samfylkingarinnar samanstendur af framkvæmdastjórn flokksins, fulltrúum sem kjörnir eru á aðalfundum kjördæmisráðanna, þrjátíu fulltrúum kjörnum á landsfundi, alþingismönnum og sveitarstjórnarfulltrúum Samfylkingarinnar, formönnum aðildarfélaga, kjördæmisráða og landshreyfinga, stjórn verkalýðsmálaráðs og formanni laganefndar.

Mikilvægar dagsetningar fram að fundi

25. september: Lokafrestur til að skila inn ályktunartillögum, ein tillaga barst, með því að smella hér er hægt að nálgast tillöguna.

10. október: Flokksstjórnarfundur verður haldinn í Suðurnesjabæ.