Framtíð fjármálakerfisins og erfðafjárskattur
Framtíð fjármálakerfisins og erfðafjárskattur
þriðjudaginn 15. okt. í hádeginu þá ætlum við að hittast á Hallveigarstígnum og ljúka umfjöllun okkar um framtíðarskipan bankakerfisins, í bili a.m.k.
Það sem við höfum rætt er að ótímabært sé að efna til sölu á ríkisbönkunun á meðan ekki liggur fyrir samþykkt stefna um hver aðkoma ríkisvaldsins eigi að vera að fjármálakerfinu í framtíðinni. Einnig að mikilvægt er að menn greini á milli greiðslumiðlunar bankakerfisins annars vegar og lánahlutans hins vegar.
Einnig munum við ræða framtíð erfðafjárskattsins sem ríkisstjórnin hyggst beita sér fyrir lækkun á en bæði BSRB og ASÍ hafa ályktað gegn þeim áformum.
Sjáumst í hádeginu á þriðjudag.