IÐNÓ

Hvað segja stúdentar og BHM um nýtt lánasjóðsfrumvarp? Fundur í Iðnó

Nýtt lánasjóðsfrumvarp verður kynnt á næstunni. Við viljum fá að ræða kosti þess og galla með stúdentum og fara yfir stefnu Samylkingarinnar í þessum málum.  Menntamálanefnd Samfylkingarinnar boðar því til opins fundar í hádeginu á Iðnó, mánudaginn 16. september og kallar eftir skoðunum stúdenta.

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, varaþingmaður og formaður málefnanefndar Samfylkingarinnar um menntamál, stýrir fundi en auk þess mæta:

  • Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður allsherjar og menntamálanefndar
  • Þórunn Sveinbjarnadóttir, formaður Bandalags háskólamanna – BHM
  • Sigríður Jónsdóttir varaforseti Landssamtaka íslenskra stúdenta – LÍS
  • Marínó Örn Ólafsson, lánasjóðsfulltrúi hjá Stúdentaráð Háskóla Íslands – SHÍ

 

Súpa og nýbakað brauð með hummus í boði menntamálanefndar Samfylkingarinnar á meðan birgðir endast.