Grand Hotel Reykjavik

Sameiginlegur morgunverðarfundur stjórnmálaflokkanna.

Í kjölfar #metoo byltingarinnar hafa stjórnmálaflokkar á Íslandi tekið höndum saman og efnt til morgunverðarfundar á Grand Hótel Reykjavík mánudaginn 22. janúar næstkomandi. Fundurinn hefst klukkan 8:30 og stendur til 10:30. Þátttaka á fundinum er öllum opin og án endurgjalds, boðið verður upp á léttar veitingar.

Markmið fundarins er að ræða næstu skref #metoo innan stjórnmálanna og leitast verður við að svara eftirfarandi spurningum.

Hvernig geta félagasamtök eins og stjórnmálaflokkar beitt sér fyrir því að minnka líkur á því að hvers kyns áreiti sé liðið?

Í hvaða farveg er eðlilegt að mál sem tengjast áreiti fari innan stjórnmálaflokka?

Dagskrá fundarins:
Húsið opnar klukkan 8:00, boðið verður upp á léttar veitingar

Opnunarávarp
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs

Metoo í skugga valdsins
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og talskona Metoo í skugga valdsins

Hvar liggja mörkin?
Valdís Ösp Ívarsdóttir, fíknifræðingur

Óskrifaðar reglur í samskiptum
Salvör Nordal, umboðsmaður barna

Sjónarhorn karlmanna sem vilja axla ábygð
Gestur Pálmason, markþjálfi

Metoo – hvað svo
Katrín Björg Ríkharðsdóttir, framkvæmdarstjóri Jafnréttisstofu

Pallborð og umræður
Fundastjóri, Kolbrún Halldórsdóttur fv. ráðherra og forseti Bandalags íslenskra listamanna mun stýra pallborðsumræðum í kjölfar erindanna.

Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar lokar fundinum

Að fundinum standa:
Alþýðufylkingin
Björt Framtíð
Dögun
Flokkur fólksins
Framsóknarflokkurinn
Miðflokkurinn
Píratar
Samfylkingin
Sjálfstæðisflokkurinn
Viðreisn
Vinstrihreyfingin grænt framboð