Kvöldspjall með ráðherra um daglega lífið

Kvöldspjall um daglega lífið í Hafnarfirði. Verið velkomin í Samfylkingarsalinn í Strandgötu 34 þriðjudaginn 21. október kl. 19:30. Á meðal gesta verða Alma Möller heilbrigðisráðherra og oddviti Samfylkingar í Suðvesturkjördæmi, Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður.
Hvernig léttum við daglega lífið þitt?
Komdu með í opið samtal.
* * *
Samfylkingin vinnur í þágu þjóðar og mótar stefnu með fólkinu í landinu. Þess vegna ferðast forysta Samfylkingar um landið nú í vetur og bankar á dyr með sjálfboðaliðum – til að spyrja: Hvernig léttum við lífið þitt? Hverju viltu breyta? Hvernig getur Samfylkingin aðstoðað?
„Daglega lífið“ er fyrsta forgangsmál í nýju málefnastarfi Samfylkingar. Nýtt útspil flokksins verður kynnt í mars eftir vinnu stýrihóps um daglega lífið með flokksfólki og almenningi um land allt. „Einföldun regluverks“ verður næsta forgangsmál og „Öryggi borgaranna“ þar á eftir.
* * *
Hér má finna útspil Samfylkingar frá síðasta kjörtímabili:
Örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum – https://bit.ly/3y7dFPm
Krafa um árangur í atvinnu- og samgöngumálum – http://bit.ly/3UE77zJ
Framkvæmdplan í húsnæðis- og kjaramálum – https://bit.ly/3AhIhzo
Og hér eru upplýsingar um næstu fundi: www.facebook.com/samfylkingin/events