Hlíðarsmári 9 - Kópavogi

Málefnastarf: Velferðarmál

Málefnastarf Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 16. maí er í fullum gangi.  Á næstu vikum verða fundir í málefnahópum þar sem unnið verður áfram að móta stefnu og áherslur Samfylkingarinnar hér í Kópavogi.  Allir fundirnir verða haldnir í húsnæði Samfylkingarinnar að Hlíðasmára 9. 

Sjá næstu fundi:

  • 21. október kl. 18:30 Umhverfis- og skipulagsmál - Íbúalýðræði ( Miðbærinn/Kárnes o.frv. ) / Ný vinnubrögð í skipulagsmálum.
  • 29. október kl. 20:00 Velferðarmál - Málefni fjölskyldna og málefni íbúa af erlendum uppruna.
  • 4. nóvember kl. 18:30 Umhverfis- og skipulagsmál - Útivist og opin svæði (Kópavogsdalur, Fossvogsdalur, Kárnes o.fl.)
  • Frummælandi er Tryggvi Felixson, hagfræðingur og fyrrv. formaður Landverndar og Kópavogsbúi.
  • 12. nóvember kl. 20:00 Menntamál - Leikskólamál.
  • 18. nóvember kl. 18:30 Umhverfis- og skipulagsmál - Efri byggðir Kópavogs. Frummælandi: Bjarki Valberg, arkitekt hjá COWI Íslandi. Fyrrum starfsmaður Kópavogsbæjar og Kópavogsbúi.
  • 26. nóvember kl. 20:00 Menntamál - Málefni grunnskóla.

Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta og taka þátt í umræðunum og taka með sér gesti ef þeir vilja.

Kveðja

Stjórn Samfylkingarinnar í Kópavogi.