Árborg alla ævi
Kosningastefna Samfylkingarinnar og óháðra í Árborg 2026 - 2030
1. Í Árborg er gott að fæðast
Við ætlum að:
- Lækka kostnað barnafjölskyldna.
- Setja þak á leikskólagjöld, lækka gjöld í áföngum og veita 100% systkinaafslátt.
- Tryggja aðgang að leikskólum frá eins árs aldri, í takt við íbúafjölda.
- Gera dvalartíma í leikskólum sveigjanlegri og með meiri fyrirsjáanleika.
- Efla stuðning við börn og fjölskyldur í vanda
2. Í Árborg er gott að vaxa
Við ætlum að:
- Samræma skólatíma í sveitarfélaginu.
- Tryggja gæði skólamáltíða.
- Hækka frístundastyrki.
- Hefja undirbúning að uppbyggingu skólahúss á Eyrarbakka.
- Bæta þjónustu almenningssamgangna, skóla- og frístundaaksturs og fjölga strætóskýlum.
- Stytta biðlista eftir greiningum hjá sálfræðingum og talmeinafræðingum sveitarfélagsins.
- Tryggja rétta þjónustu fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra þegar þörf er á.
- Efla forvarnarstarf, auka félagsmiðstöðvastarf fyrir 5.–7. bekk í öllum grunnskólum Árborgar og efla ungmennahús.
3. Í Árborg er gott að menntast
Við ætlum að:
- Styðja við öflugt og fjölbreytt nám á framhaldsskólastigi og fullorðinsfræðslu, með Fjölbrautaskóla Suðurlands og Fræðslunetinu.
- Hvetja til byggingar nemendagarða og ódýrra fyrstu íbúða fyrir ungt fólk.
- Hvetja til frumkvöðlastarfs, nýsköpunar og nýrra starfstækifæra
4. Í Árborg er gott að starfa
Við ætlum að:
- Fjárhagslegir hvatar til að laða að fyrirtæki og stofnanir.
- Tryggja nægt lóðaframboð með skýrri framtíðarsýn – bæði fyrir íbúðir og atvinnustarfsemi.
- Einfalda regluverk og koma á einum viðkomustað fyrirtækja hjá sveitarfélaginu.
- Byggja upp innviði og styrkja ferðaþjónustu á sögustöðum og náttúruperlum.
- Tryggja auðlindir og orkuöryggi sveitarfélagsins til framtíðar – heitt og kalt vatn.
- Skapa fleiri störf fyrir fólk með skerta starfsgetu.
5. Í Árborg er gott að samgleðjast
Við ætlum að:
- Opna á samtal við hagsmunaaðila um uppbyggingu á íþróttasvæðinu við Engjaveg í samhengi við uppbyggingu íþróttamannvirkja við grunnskóla sveitarfélagsins.
- Horfa til framtíðar með undirbúningi að byggingu menningarhúss sem gæti hýst tónlistarskóla, ýmiss konar safnastarf, tónleika, leiksýningar o.fl.
- Lyfta upp blómlegri fjölmenningu sem er í sveitarfélaginu með fjölmenningarhátíð og halda fjölmenningarþing samhliða.
- Efla söfn í sveitarfélaginu með því að auka sýnileika þeirra og bæta aðgengi.
- Tryggja að íbúar af erlendum uppruna fái viðeigandi stuðning til að aðlagast samfélaginu.
6. Í Árborg er gott að eldast
Við ætlum að:
- Nýta velferðartækni til að bæta þjónustu og öryggi í heimahúsum.
- Efla einstaklingsbundna þjónustu og vinna markvisst gegn einsemd.
- Þrýsta á ríkið að fjölga hjúkrunarrýmum og dagdvalarrýmum (Vinaminni og Árblik).
- Styðja við heilsueflingu og félagsstarf eldri borgara með aðstöðu og hvatningu.
7. Í Árborg er framtíðin
Við ætlum að:
- Lækka fasteignagjöld og álögur á íbúa og fyrirtæki í áföngum á kjörtímabilinu.
- Virkja Mín Árborg sem einn viðkomustað fyrir þjónustu sveitarfélagsins.
- Bæta ásýnd sveitarfélagsins með eflingu umhverfisdeildar og vitundarvakningu um snyrtilegt umhverfi.
- Ljúka uppbyggingu fráveitu- og hreinsistöðvar á Selfossi.
- Hefja undirbúning uppbyggingar hreinsistöðva á Stokkseyri og Eyrarbakka.
- Stuðla að aukinni byggð og sterkara atvinnulífi á Eyrarbakka og Stokkseyri, með framboði á lóðum, bættum innviðum og aukinni þjónustu.