Tökum ábyrgð hvert á öðru

Þrjú samvinnuverkefni ríkis og sveitarfélaga

Lækkum kostnað barnafólks

  • með þaki á leikskólagjöldum og rétti til leikskólavistar

Hlúum að fólkinu sem byggði landið

  • með áframhaldandi þjóðarátaki í umönnun eldra fólks

Auðveldum rekstur og uppbyggingu

  • með einföldun regluverks og leyfisveitinga á öllum stigum

Þannig tökum við ábyrgð hvert á öðru og léttum daglega lífið

1. Lækkum kostnað barnafólks

Samfylkingin léttir daglega lífið hjá barnafólki. Þegar reikningarnir eru þyngstir og brasið mest. Þá er mikilvægast að fjölskyldan fái stuðning frá samfélaginu.

Þess vegna leggjum við nú til þak á leikskólagjöldum og 100% systkinaafslátt. Til að lækka kostnað barnafólks um land allt með beinum hætti. Þetta skilar allt að 450 þúsund krónum á ári í vasa meðalfjölskyldu með tvö börn í þeim sveitarfélögum þar sem verðið hefur hækkað mest undir Sjálfstæðisflokki. Það munar um minna.

Með Samfylkingu í forystu ríkisstjórnar skapast einnig tækifæri til að stíga loksins skrefið til fulls og brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla – í eitt skipti fyrir öll. Það viljum við gera með samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um sameiginlega fjármögnun.

Þannig tökum við ábyrgð hvert á öðru og stöndum með framtíð Íslands.

Þak á leikskólagjöldum og 100% systkinaafsláttur

  • Engin fjölskylda greiði meira en 50 þúsund krónur á mánuði fyrir 40 tíma leikskólaviku (dvalargjald og fæðisgjald) – en tekjulægri greiði minna.

Þannig hlífum við barnafjölskyldum við allt að 450 þúsund króna kostnaði á ári miðað við svokallað „Kópavogsmódel“

Lögfestum rétt til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi

  • Með nýrri löggjöf og sameiginlegri fjármögnun ríkis og sveitarfélaga sem kemur til framkvæmda í skrefum á næstu 4 árum.

Þannig brúum við loksins bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla eins og gert hefur verið á öðrum Norðurlöndum.

  • Byggjum á tillögum aðgerðahóps forsætisráðuneytis um brúun bilsins milli fæðingarorlofs og leikskóla sem skipaður var fulltrúum verkalýðshreyfingar, fyrirtækja, kennara, sveitarfélaga og ráðuneyta.

Minnkum skutlið og eflum frístundastyrki

  • Bjóðum börnum og ungmennum frítt í Strætó.
  • Höldum áfram að efla frístundastyrki við barnafjölskyldur til að ýta undir virka þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi um land allt.

2. Hlúum að fólkinu sem byggði landið

Samfylkingin hlúir að fólkinu sem byggði landið. Það er skylda okkar jafnaðarfólks að tryggja öryggi og mannvirðingu allra á efri árum. Ekki síst er þetta mikilvægt þegar heilsan brestur eftir langa ævi.

Á fyrsta ári í ríkisstjórn höfum við tryggt að lífeyrir fylgi launum og hækkað frítekjumark ellilífeyris. Þá höfum við sett af stað þjóðarátak í umönnun eldra fólks sem birtist meðal annars í stórfelldri uppbyggingu hjúkrunarrýma um land allt.

Næsta skref er að stórefla þjónustu við eldra fólk í heimahúsum með samhæfðu átaki ríkis og sveitarfélaga. Samhliða því sem við eyðum biðlistanum eftir hjúkrunarrýmum fyrir árið 2030.

Þannig tökum við ábyrgð hvert á öðru og hlúum að fólkinu sem byggði landið.

Eyðum biðlistanum eftir hjúkrunarrýmum fyrir árið 2030

  • Með þjóðarátaki í umönnun eldra fólks og uppbyggingu yfir 1.500 hjúkrunarrýma (skv. nýrri framkvæmdaáætlun til ársins 2030).
  • Árið 2027 verður búið að helminga biðlistann frá 2024.
  • Árið 2030 er miðað við að biðlistinn verði kominn niður í 100 manns en að sá hópur fái biðrými og enginn bíði lengur en 90 daga.

Stóreflum þjónustu við eldra fólk í heimahúsum

  • Með því að bjóða samfellda þjónustu við eldra fólk með samþættingu heimaþjónustu, heimahjúkrunar og öldrunarráðgjafar sem fylgir þörfum hvers og eins (þar með talið fyrir heimilishjálp, félagsstarf, heilsueflingu, dagdvalir, iðju- og sjúkraþjálfun).

Þannig tryggjum við eldra fólki og fjölskyldum örugga handleiðslu á efri árum.

Styðjum við virkni og grípum fólkið fyrr sem þarf frekari þjónustu.

  • Með því að uppfylla þjóðarmarkmið um fastan heimilislækni og heimilisteymi fyrir alla Íslendinga – þar sem eldra fólk og langveikir eru í forgangi á fyrsta kjörtímabili.

Frá 2024 hefur hlutfall 75 ára og eldri með fastan heimilislækni aukist úr 85% í 95% á höfuðborgarsvæðinu, og úr 75% í 80% hjá 60 ára og eldri.

3. Auðveldum rekstur og uppbyggingu

Samfylkingin hefur látið verkin tala í ríkisstjórn. Við auðveldum rekstur og uppbyggingu. Með því að einfalda regluverk og hrista upp í kerfinu eftir stöðnun um árabil.

Nú gerum við slíkt hið sama í sveitarstjórnum vítt um land: Einföldum leyfisveitingar, aukum þjónustulund og byggjum á trausti við eftirlit og leiðsögn um úrbætur.

Þess vegna leggjum við til einn viðkomustað fyrir fyrirtæki hjá hverju sveitarfélagi. Þar sem fyrirtækin hafa fastan tengipunkt til halds og trausts. Um leið höldum við okkar striki á sviði landsmála og ljúkum við fækkun ríkisstofnana um 15% á kjörtímabilinu til að auka hagræði og efla þjónustu.

Þannig tökum við ábyrgð hvert á öðru og aukum verðmætasköpun á Íslandi.

Höldum áfram að einfalda leyfisveitingar og regluverk

  • Með því að gera það sama í sveitarstjórnum og við höfum gert á fyrsta ári í ríkisstjórn þegar kemur að markvissri einföldun á leyfisveitingum og regluverki.

Einföldum og sameinum leyfisferli, drögum úr kvöðum við að afla umsagna og setjum skýr tímamörk á afgreiðslu leyfisveitinga.

Leiðum viðhorfsbreytingu og leggjum áherslu á þjónustulund í öllu viðmóti hins opinbera.

  • Snúum dæminu við þannig að frumkvöðlum og fyrirtækjum sé treyst til að fara strax af stað og hefja rekstur.

En veitum leiðsögn um úrbætur þegar eftirlit leiðir í ljós að þörf er á.

Einn viðkomustaður fyrir fyrirtæki hjá hverju sveitarfélagi

  • Til að auðvelda rekstur og uppbyggingu með því að fyrirtæki hafi fastan tengipunkt í samskiptum við sveitarfélagið sem veitir aðstoð og sér um samhæfingu.

Léttum á kerfinu og fækkum ríkisstofnunum um 15% á kjörtímabilinu

  • Til að auka hagræði, styrkja stofnanir og bæta þjónustu þeirra við fólk og fyrirtæki.
  • Fækkum einnig ráðum, nefndum og stjórnum til að auka skilvirkni.

Á fyrsta ári hefur ríkisstjórnin lögfest fækkun ríkisstofnana um 5% en stefnt er að 15% fækkun á kjörtímabilinu