Daglegt líf sem virkar
Kosningastefna Samfylkingarinna í Fjarðabyggð 2026 - 2030
1. Setjum fjölskyldur í fyrsta sæti
Endurskoðum leikskólamál
- Við viljum með samtali við fjölskyldur, starfsfólk leikskólanna og atvinnulíf tryggja að þjónustan virki vel í daglegu lífi.
Styðjum við skólana
- Styrkjum skóla og frístundastofnanir með virku samráði við starfsfólk og foreldra svo daglegt líf barna og fjölskyldna gangi betur upp.
Eflum frístundastarf
- Aukum frístundastyrk og jöfnum aðgengi að íþróttum og tómstundum óháð búsetu.
Fjölskyldukort fyrir íbúa
- Eitt kort fyrir heimili sem veitir aðgang að sundlaugum, líkamsrækt og skíðasvæðum. Lækkum kostnað íbúa og gerum sveitarfélagið raunverulega að heilsueflandi samfélagi.
2. Eflum þjónustu við fatlað fólk
Tryggjum að þjónusta við fatlað fólk sé samfelld, persónumiðuð og byggð á raunverulegum þörfum í daglegu lífi.
Byggjum þjónustu á raunverulegum þörfum
- Eflum persónumiðaða þjónustu og byggjum hana á virku samráði við notendur, fjölskyldur og starfsfólk.
Tryggjum samfellu og betra aðgengi
- Fylgjum eftir áætlun um bætt aðgengi og tryggjum samfellda þjónustu við yfirfærslu barna í fullorðinsþjónustu.
Aukum þátttöku og stuðning
- Eflum félags- og íþróttastarf og aukum framboð á stuðningsþjónustu með betri upplýsingagjöf og kynningu.
2. Gefum íbúum okkar rödd
Setjum á laggirnar heimastjórnir í hverjum byggðakjarna
- Setjum á laggirnar heimastjórn í hverjum kjarna og gefum íbúum Fjarðabyggðar rödd til að hafa raunveruleg áhrif á ákvarðanir.
Einföldum stjórnsýslu og eflum samráð við íbúa
- Minnkum flækjustig með skýrum svörum og reglulegum íbúafundum og virku samtali áður en ákvarðanir eru teknar.
Eflum upplýsingagjöf fyrir öll
- Tryggjum að öll sem flytja til Fjarðabyggðar, óháð uppruna, geti nálgast upplýsingar um þjónustu sveitarfélagsins.
3. Hér viljum við búa
Byggjum brú heim
- Gerum Fjarðabyggð að stað þar sem ungt fólk velur að vera, með sterkari tengslum við skóla og atvinnulíf, auknum tækifærum og virkri þátttöku í samfélaginu.
Eflum félagsmiðstöðvar og bætum opnunartíma
- Mótum framtíðarsýn fyrir félagsmiðstöðvarnar okkar og búum til vettvang fyrir aldursbilið 16–18 ára.
Aukum áhrif ungmennaráðs
- Tryggjum að raddir unga fólksins hafi vægi í ákvörðunum sem eru teknar í sveitarfélaginu.
Gerum fólki kleift að læra í heimabyggð
- Bætum aðgengi að námi í samstarfi við skóla með bættri nýtingu stafrænnar tækni.
4. Hlúum að eldra fólki
Eflum heimaþjónustu og stuðning
- Aukum samstarfi við HSA og leitum lausna sem gerir fólki kleift að búa lengur heima með reisn og öryggi.
Fjölgum hentugu húsnæði
- Vinnum með verktökum og óhagnaðardrifnum leigufélögum til að finna hentugar lausnir á húsnæði fyrir eldra fólk.
Virkjum samráð við eldra fólk
- Mótum og þróum þjónustu í samstarfi við eldri kynslóðina, þannig að reynsla og þarfir þeirra ráði ferðinni.
5. Atvinnulíf í sátt við náttúruna
Byggjum upp fjölbreytt atvinnulíf
- Styðjum betur við frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtæki því þannig sköpum við fleiri og fjölbreyttari störf.
Tengjum atvinnulíf við menntun og nýsköpun
- Sköpum vettvang fyrir atvinnulífið til að tengjast við háskóla, rannsóknarstofnanir og þekkingarsetur.
Höfum sjálfbærni að leiðarljósi í atvinnuuppbyggingu
- Tryggjum jafnvægi ábyrgrar nýtingar auðlinda og uppbyggingu atvinnulífs.
Gerum fjarvinnu og fjarnám að raunhæfum valkosti
- Stuðlum að uppbyggingu samvinnurýma, betri tengingu við háskóla og sterkari innviðum.
6. Samgöngur sem tengja samfélagið
Almenningssamgöngur sem virka
- Setjum á reglulegar ferðir sem taka mið af skóla, vinnu og tómstundum.
Suðurfjarðarvegur og Fjarðagöng í forgang
- Bætum öryggi lykilinnviða, styttum vegalengdir og styrkjum atvinnu og búsetu á svæðinu.
Öruggir göngu- og hjólastígar
- Tengjum byggðakjarna betur saman og styðjum við heilsu, öryggi og daglegt líf.
7. Húsnæði sem styður samfélagið
Tryggjum að íbúar geti fundið og byggt upp húsnæði sem hentar þeirra þörfum í öllum byggðarkjörnum Fjarðabyggðar, með einfaldari ferlum og markvissari áætlanagerð.
Einföldum og flýtum uppbyggingu
- Einföldum skipulagsferla, styttum málsmeðferð og styðjum við uppbyggingu með markvissum hvötum.
Byggjum út frá raunverulegri þörf
- Kortleggjum húsnæðisþörf í hverjum byggðarkjarna og nýtum betur tómt og vannýtt húsnæði.
Tryggjum jafnt aðgengi og framtíðarsýn
- Styðjum minni byggðarkjarna, bætum aðgengi fyrir öll og setjum fram skýra langtímaáætlun um uppbyggingu og viðhald.
Hér má nálgast ítarlegri kosningastefnu í pdf skjali.
You can view the entire election manifesto in English on a PDF file here.