Enn betri Mosfellsbær

Kosningastefna Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ 2026 - 2030

Mosfellsbær á að vera samfélag þar sem öll fá tækifæri til að lifa góðu lífi, óháð aldri, efnahag eða aðstæðum. Við viljum byggja á þeim árangri sem náðst hefur og halda áfram að efla velferð, menntun, þjónustu og umhverfi bæjarins.

Leiðarljós okkar eru jöfnuður, velferð og ábyrg uppbygging. Við leggjum áherslu á samfélag sem byggir á sterkum grunni, þar sem fólk getur búið á öllum æviskeiðum, þar sem börn og ungmenni dafna, eldri borgarar njóta virðingar og atvinnulíf blómstrar í sátt við náttúru og bæjarbrag.

1. Fjölskylda og velferð

Velferð, mannréttindi og jöfn tækifæri eru grunnur að góðu samfélagi. Mosfellsbær á að vera samfélag þar sem fólk getur búið á öllum æviskeiðum og fengið þjónustu sem mætir þörfum þess. Við viljum halda áfram þeirri uppbyggingu sem hófst á líðandi kjörtímabili, sérstaklega í átt að samþættri og aðgengilegri þjónustu.

Árangur líðandi kjörtímabils

  • Ný skammtímavistun fyrir fötluð börn.
  • Nýr búsetukjarni fyrir fatlað fólk reistur í Helgafellshverfi.
  • Í Klapparhlíð hefur risið aðgengilegur leikvöllur þar sem öll börn geta leikið sér saman, óháð hreyfigetu.
  • Félagslegt leiguhúsnæði í eigu bæjarins aukið um 30%
  • Aðgengi hreyfihamlaðra hefur verið bætt markvisst með uppsetningu rampa við skóla, stofnanir, verslanir, þjónustu og veitingastaði í Mosfellsbæ.
  • Mosfellsbær tók yfir rekstur Skálatúns.

Áherslur og aðgerðir

Samþætt þjónusta

Við ætlum að þróa áfram samþættingu velferðar- og heilbrigðisþjónustu þannig að þjónustan verði fjölbreyttari, samfelld og aðgengileg. Markmiðið er að fólk þurfi ekki að leita á milli kerfa heldur fái heildstæða þjónustu á einum stað.

Inngilding og þjónusta við fatlað fólk

Við viljum tryggja að fatlað fólk njóti fullrar þátttöku í samfélaginu. Það felur í sér að stytta bið eftir þjónustu, efla persónulega aðstoð og stoðþjónustu og styðja sjálfstætt líf. Þegar kemur að þjónustu er mikilvægt að sveitarfélagið taki aukið frumkvæði að því að bjóða þjónustu, í stað þess að einstaklingar þurfi sjálfir að bera sig eftir henni.

Frístundir fatlaðra barna og ungmenna

Styðja og efla fjölbreytt framboð íþrótta og tómstunda fyrir börn og ungmenni, með sérstakri áherslu á jafnt aðgengi, þátttöku og stuðning sem mætir ólíkum þörfum.

Húsnæðismál

Stefnt er að því að auka framboð íbúða á viðráðanlegu verði, sérstaklega fyrir tekjulága, ungt fólk og fyrstu kaupendur. Það verður gert með áframhaldandi uppbyggingu félagslegs húsnæðis og auknu samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög um uppbyggingu minni og ódýrra íbúða.

Fjárhagsstuðningur

Við ætlum að hækka upphæð fjárhagsaðstoðar í samræmi við nágrannasveitarfélög og leggja áherslu á að hún styðji fólk til sjálfstæðis. Þá verði aukinn afsláttur örorkulífeyrisþega af fasteignagjöldum.

Íbúalýðræði og samtal

Við ætlum að efla samtal við þá sem nýta þjónustu sveitarfélagsins, meðal annars með þjónustukönnunum og auknu íbúalýðræði, til að tryggja að þjónustan þróist í takt við raunverulegar þarfir og óskir íbúa.

Aðgengi fyrir öll

Sett verði aðgengisstefna og unnið markvisst að því að bæta aðgengi allra íbúa, hvort sem er að almenningsrýmum, þjónustu eða upplýsingum.

Lýðheilsu- og forvarnarstefna

Við munum endurnýja lýðheilsu- og forvarnarstefnu bæjarins og samþætta hana við barnvænt samfélag. Við munum stuðla að hollu og næringarríku mataræði í skólum Mosfellsbæjar. Við munum tryggja jafnt aðgengi að hollum morgunverði í öllum skólum og bjóða upp á hafragraut.

2. Leik- grunnskólar og börnin okkar 

Við viljum að skólar í Mosfellsbæ séu í fremstu röð og styðji við vellíðan, vöxt og þroska allra barna. Lykilatriði er að tryggja jafnt aðgengi að námi, efla stoðþjónustu og skapa gott og gefandi faglegt umhverfi.

Árangur líðandi kjörtímabils

  • 100 milljónum króna var varið í átaks- og forvarnarverkefnið „Börnin okkar“, sem er nú fullfjármagnað.
  • Öll börn 12 mánaða og eldri með leikskólapláss
  • Nýr leikskóli í Helgafellslandi
  • Frístundastyrkur hækkaður
  • Aðgengi að sálfræðingi í unglingadeildum
  • Mosfellsbær vottaður sem Barnvænt sveitarfélag
  • Farsældarlögin innleidd
  • Bergið headspace samstarf um ráðgjöf og viðtöl til ungmenna Mosfellbæjar
  • Skólalóðir og leiktæki mikið endurnýjað
  • Leikskólinn Sumarhús opnaði
  • Nýtt íþróttahús við Helgafellskóla

Áherslur og aðgerðir

Fleira fagfólk í skólana

Við ætlum að fjölga sérfræðingum innan skólakerfisins, svo sem talmeinafræðingum, iðjuþjálfum, þroskaþjálfum, félagsráðgjöfum og hegðunarráðgjöfum, í samráði við fagfólk í skólum, og styrkja teymi í kringum nemendur og kennara. Fyrsta skref er að koma á fót farteymi og ráða talmeinafræðing sem þjónar leikskólum bæjarins.

Farsældarlögin

Við munum standa vörð um innleiðingu farsældarlaganna og halda áfram að vinna eftir þeim verkferlum sem hafa verið innleiddir, með áherslu á snemmtæka íhlutun og samstarf milli kerfa.

Starfsumhverfi og fagmennska í leik- og grunnskólum
Við viljum halda áfram að bæta starfsumhverfi skólanna með markvissum stuðningi, símenntun og virku samtali við starfsfólk í skólum Mosfellsbæjar. Sérstök áhersla verður lögð á að skapa aðstæður sem laða að og halda í öflugt fagfólk.

Við munum jafnframt tryggja starfsfólki með annað móðurmál en íslensku og auka svigrúm til að læra íslensku, með markvissum úrræðum, stuðningi og tíma til náms. Það er lykilatriði fyrir gæði skólastarfs og samskipti við nemendur og foreldra.

Lág leikskólagjöld og 100% systkinaafsláttur
Við ætlum að halda leikskólagjöldum í Mosfellsbæ einum þeim lægstu á landinu og veita auk þess 100% systkinaafslátt strax við fyrsta systkini.

Réttur til leikskólavistar
Við höldum áfram að tryggja að börn í Mosfellsbæ komist í leikskóla að loknu fæðingarorlofi.
Við styðjum við lögfestingu á rétti til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi, með nýrri löggjöf og sameiginlegri fjármögnun ríkis og sveitarfélaga sem kemur til framkvæmda í skrefum á næstu 4 árum.

Skólahúsnæði og nýting
Sett verður skýr langtímastefna um uppbyggingu og viðhald skólahúsnæðis og annarrar námsaðstöðu, þar á meðal útikennsluaðstöðu í náttúru Mosfellsbæjar sem nýtist öllum skólabörnum. Jafnframt viljum við nýta skólahúsnæði betur utan skólatíma til hagsbóta fyrir samfélagið.

Félagsstarf ungmenna

Við munum fjölga markvisst viðburðum fyrir ungmenni og skipuleggja þá í samráði við þau sjálf. Við munum byggja upp og bæta aðstöðu fyrir ungmenni, þar á meðal þrautabrautir, hreystibrautir og brettaaðstöðu. Við munum tryggja samráð við ungmenni áður en ákvarðanir eru teknar um málefni sem þau varða og setja upp einfaldar stafrænar leiðir fyrir ungmenni til að koma skoðunum sínum á framfæri við bæinn. Við munum jafnframt halda áfram að styðja vel við starfsemi Bólsins og bæta aðstöðu þess.

Samtal - lykill að árangri

Við munum halda áfram að styrkja samstarf milli skóla, frístunda og velferðarþjónustu og tryggja að raddir barna og ungmenna heyrist, meðal annars með eflingu ungmennaráðs. 

Stoðþjónusta og snemmtæk íhlutun
Við munum efla stoðþjónustu í skólum þannig að börn fái stuðning fyrr og út frá þörfum sínum, í anda skóla án aðgreiningar, án þess að þurfa að bíða eftir formlegum greiningum. Í samráði við kennara og fagfólk munum við sérstaklega efla íslenskukennslu fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku. Það er lykilatriði fyrir vellíðan og námsárangur.

 

Þannig tökum við ábyrgð hvert á öðru og stöndum með fjölskyldum í Mosfellsbæ.

3. Íþrótta - tómstunda og menningarbærinn Mosfellsbær

Mosfellsbær er öflugt menningar- og íþróttasamfélag með ríka sögu. Við viljum styrkja enn frekar menningu, íþróttir og félagslíf og tryggja aðgengi fyrir öll að þessum lífsgæðum.

Árangur líðandi kjörtímabils

  • Hlégarður heim: Bærinn tók aftur við rekstri félagsheimilisins okkar og nú þegar blómstrar þar fjölbreytt menningarstarfsemi og félagsstarf.
  • Menning í mars menningarhátíðin sett á laggirnar og er nú þegar orðin ómissandi hluti vorsins, með sögukvöldum og fjölbreyttum viðburðum.
  • Hugað sérstaklega að tengslum við náttúru og sögu í hönnun nýs hverfis í Blikastaðalandi
  • Markviss uppbygging íþróttamannvirkja á Varmá, svo sem með útboði og hönnun á aðkomuhúsi og félagsaðstöðu. Gerður var nýr aðalleikvöllur og ný frjálsíþróttaaðstaða.
  • Nýr aðalvöllur að Varmá.

Áherslur og aðgerðir

Aðgengi barna og ungmenna
Við munum hækka frístundastyrk til að tryggja að öll börn og ungmenni  hafi jafnt aðgengi að íþróttum og tómstundum. Með því lækkum við kostnað foreldra og eflum  þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþrótta og tómstundastarfi.

Íþróttir og frístundir
Við ætlum að halda áfram uppbyggingu íþróttamannvirkja með fjölnota íþróttahúsi í Blikastaðalandi og ljúka uppbyggingu á Varmársvæðinu og  klárum stúku- og  þjónustubygginu. Skíðasvæði Skálafelli  verður opnað að nýju.

Sundlaugar

Við ætlum að lengja opnunartíma sundlauga bæjarins til kl. 21 um helgar yfir vetrartímann og 22 yfir sumartímann og fjölga heitum pottum, sánum og fleira, gestum laugarinnar til aukinnar ánægju og yndisauka. 

Íþrótta- og tómstundastefna mótuð til framtíðar
Mosfellsbær er ört vaxandi bæjarfélag og við ætlum að vera í fararbroddi þegar kemur að íþrótta- og tómstundastarfi. Við munum taka fagnandi á móti fjölgun barna og allra sem stunda íþróttir og tómstundir með metnaðarfullri íþrótta- og tómstundastefnu til framtíðar. Stefnan mun skýra hvernig við mætum ólíkum þörfum og tryggjum öllum  tækifæri til fjölbreyttrar þátttöku. Stefnan verður unnin í nánu samráði við íþrótta- og tómstundafélög í Mosfellsbæ.

Menning og saga
Við ætlum að efla Álafosskvosina, meðal annars með því að fylgja eftir umsókn um að svæðið verði skilgreint sem verndarsvæði í byggð og styðja við uppbyggingu ullarminjasafns. Jafnframt verður unnið að því að lyfta sögu bæjarins og hún gerð aðgengilegri og sýnilegri.

Menningarstofnanir
Við munum hefja undirbúning að framtíðarhúsnæði fyrir tónlistarskóla í Mosfellsbæ. Við munum standa vörð um Bókasafn Mosfellsbæjar og listasal bæjarins sem lykilstofnanir í menningarlífi bæjarins og tryggja áfram sterkt og lifandi starf þeirra.

Hlégarður
Við viljum efla starfsemi Hlégarðs enn frekar og bæta aðgengi að húsinu, þannig að það nýtist betur til félags- og menningarstarfs. Efri hæðin í Hlégarði tekin í notkun og nýtt í þágu bæjarbúa.

4. Gott að eldast í Mosfellsbæ

Mosfellsbær á að vera samfélag þar sem eldri borgarar njóta virðingar og öryggis og hafa tækifæri til virkrar þátttöku. Við viljum styðja fólk til að búa lengur heima og lifa innihaldsríku lífi.

Árangur líðandi kjörtímabils

  • „Gott að eldast“ verkefnið, samþætting á stuðnings- og heilbrigðisþjónustu
  • Tengiráðgjafi ráðinn til bæjarins, sem hafði meðal annars beint samband við alla íbúa Mosfellsbæjar 80 ára og eldri og bauð upp á viðtalstíma sem opnir voru öllum sem vildu og þurftu
  • Heima endurhæfingarteymi sett á fót
  • Dagdvalarrýmum fjölgað úr 9 í 35 og dagdvölin Hlýjan opnuð
  • Brúarland gert að miðstöð félagsstarfs í Mosfellsbæ og Hlégarður opnaður félagsstarfi eldra fólks

Áherslur og aðgerðir

Félagslíf og virkni

Við munum hækka frístundastyrk eldri borgara í 30 þúsund krónur til að efla þátttöku þeirra í samfélaginu. Við munum jafnframt styðja við og efla félagsstarf, menningar- og heilsueflandi úrræði og auka framboð af viðburðum og tækifærum til þátttöku. Starfið verður þróað í samráði við eldra fólk og öldungaráð Mosfellsbæjar þannig að þjónustan taki mið af þörfum og áhuga.

Styttum bið eftir hjúkrunarrýmum

Mosfellsbær styður markvisst við uppbyggingu hjúkrunarrýma og vinnur með ríkinu að því að stytta biðtíma. Markmiðið er að enginn bíði lengur en nauðsynlegt er eftir viðeigandi úrræði.

Þjónusta og sjálfstætt líf

Við munum þróa áfram þjónustu sem gerir eldri borgurum kleift að búa lengur heima, meðal annars með því að festa í sessi aðgerðir úr „Gott að eldast“ verkefninu, með samþættingu félags-, stoð- og heilbrigðisþjónustu og heimaendurhæfingu. Við munum jafnframt nýta tæknilausnir betur til að efla þjónustu, öryggi og lífsgæði.

Gjöld og réttindi

Afsláttur ellilífeyrisþega af fasteignagjöldum aukinn.

Þannig tökum við ábyrgð hvert á öðru og hlúum að fólkinu sem byggði samfélagið.

5. Skipulag og umhverfi

Skipulag og umhverfi móta daglegt líf íbúa. Við viljum þróa Mosfellsbæ á sjálfbæran hátt þar sem náttúra, byggð og þjónusta mynda heildstæða og mannvæna heild.

Árangur líðandi kjörtímabils

  • Skipulag 1. áfanga Blikastaðalands klárað með einstaklega metnaðarfullum hætti, þar sem áherslu verður á að viðhalda bæjarbragnum og góðum tengslum við náttúru og sögu staðarins
  • Heildarendurskoðun á aðalskipulagi komin í samþykktarferli
  • Loftslags- og umhverfisstefna með mælanlegum markmiðum gerð og staðfest
  • Hagkvæm gatnalýsing innleidd með LED-væðingu
  • Fjölgun grenndarstöðva 

Áherslur og aðgerðir

Samgöngur

Minnkum kostnað og skutl með gjaldfrjálsum Strætó fyrir börn og ungmenni að 18 ára aldri.

Við stefnum á að auka tíðni strætó og gæta jafnræðis milli hverfa varðandi tíðni og hve lengi vagnarnir ganga. Við ætlum að auka gæði og fjölga biðskýlum. Byrja að skipuleggja betri tengingar á milli hverfa.

Náttúra og útivist
Við setjum vernd náttúrunnar í forgang, tryggjum líffræðilega fjölbreytni og viljum efla stígakerfi og aðgengi að útivistarsvæðum. Við ætlum að leggja hringstíga í kringum Úlfarsfell og Hafravatn. Fjölga skal bekkjum, ruslatunnum og salernisaðstöðum.

Við munum kanna og stefna að uppsetningu hundagerðis í Mosfellsbæ, til dæmis við upphaf gönguleiða við Úlfarsfell við Skarhólabraut. Markmiðið er að bæta aðstöðu fyrir hundaeigendur og styðja við virka útivist.

Samhliða munum við vinna að heildstæðri skipulagningu útivistarsvæðisins í kringum Úlfarsfell, í samstarfi við Reykjavíkurborg, með það að markmiði að þróa aðlaðandi útivistarsvæði með göngu- og hjólastígum, áningastöðum og bættri aðstöðu fyrir almenning. Þar getur hundagerði verið eðlilegur hluti af heildarlausn.

Sjálfbært skipulag og ný hverfi
Við viljum skipuleggja ný hverfi með sjálfbærni að leiðarljósi, með fjölbreyttri íbúðagerð og góðum tengingum við þjónustu, samgöngur og útivist. Greið tengsl við almenningssamgöngur og stígakerfi verði tryggð, bæði innan hverfa og til annarra hverfa og útivistarsvæða.

Blikastaðalandið
Markmiðið er að byggja þar upp grænt og heildstætt hverfi með sterkum innviðum og tengingum við náttúru og samfélag. Allir innviðir svo sem grunn- og leikskóli byggist upp samhliða íbúðar uppbyggingu.

Miðbær og þjónusta
Mosfellsbær verði skipulagður sem fjölkjarna þjónustusamfélag. Menningartengd starfsemi verði þróuð og byggð upp í og við Álafosskvos og Hlégarðssvæðið. Stjórnsýsla, ásamt fjölbreyttri verslunar- og veitingaþjónustu, verði þróuð í bland við uppbyggingu íbúðarbyggðar í núverandi miðbæ bæjarins.

Staðbundnir þjónustukjarnar
Mótaðir minni staðbundnir þjónustukjarnar með áherslu á nærþjónustu í nýjum hverfum, í samræmi við íbúafjölda og þéttleika, eins og gert verður í Blikastaðahverfinu.

6. Blómleg atvinnustefna

Sterkt atvinnulíf er forsenda velferðar. Við viljum byggja upp fjölbreytt og sjálfbært atvinnulíf sem fellur að bæjarbrag Mosfellsbæjar og vistvænni framtíðarsýn.

Árangur líðandi kjörtímabils

  • Uppfærð atvinnustefna
  • Uppbygging á Korputúni
  • Þátttaka í ferðamálaverkefninu Áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins skilaði fjölda tillagana sem styrkja Mosfellsbæ sem spennandi áfangastað ferðamanna
  • Vinna hafin við að víkka út skilgreind vaxtamörk athafnasvæðis

Áherslur og aðgerðir

Léttum á kerfinu

Við munum einfalda leyfisveitingar og regluverk með því að sameina og stytta leyfisferli, draga úr óþarfa umsögnum og setja skýr tímamörk á afgreiðslu. Samhliða munum við auka þjónustulund og byggja á trausti, þar sem fyrirtækjum er treyst til að hefja rekstur og eftirlit felst í leiðsögn og úrbótum, ekki hindrunum.

Við setjum upp einn viðkomustað fyrir fyrirtæki hjá Mosfellsbæ, þar sem einn tengiliður ber ábyrgð á samskiptum og samhæfingu. Með því léttum við á kerfinu, einföldum stjórnsýslu og aukum skilvirkni. Markmiðið er hraðari ákvarðanir, minna flækjustig og betri þjónusta við fólk og fyrirtæki.

Atvinnuuppbygging og skipulag
Við ætlum að vinna eftir aðgerðaáætlun atvinnustefnunnar og leggja aukinn metnað í uppbyggingu atvinnusvæða og greiðum götu verkefna sem styðja við græna framtíðarsýn. Fylgjum eftir vinnu við að víkka út skilgreind mörk atvinnusvæðis til að rýma fjölbreytta atvinnustarfsemi þannig að skortur á lóðum standi ekki uppbyggingu fyrir þrifum. 

Farsældartún
Við viljum í samstarfi við ríkið að  flýta uppbyggingu á Farsældartúni í þágu barna og ungmenna.

Ferðaþjónusta

Við viljum styðja við atvinnustarfsemi sem að miðar að sjálfbærri ferðaþjónustu með áherslu á góða aðstöðu, bætt aðgengi og vernd náttúruperlna. Og laða að ferðaþjónustufyrirtæki sem við vilja taka þátt í þessari vegferð með okkur.

Umhverfi og nýsköpun
Við viljum setja skýr umhverfisskilyrði fyrir atvinnustarfsemi og styðja við nýsköpun og frumkvöðlastarf sem fellur að gildum bæjarins. 

7. Rekstur bæjarfélagsins og stjórnsýsla

Góð og gagnsæ stjórnsýsla er forsenda trausts og árangurs. Við viljum tryggja ábyrgan rekstur, hlúa að mannauði sveitarfélagsins og virkja íbúalýðræði í auknum mæli.

Árangur líðandi kjörtímabils

  • Viðsnúningur í rekstri - hallalaus rekstur síðustu þrjú ár
  • Farið í stjórnsýslu- og rekstrarúttekt á rekstri og þjónustu Mosfellsbæjar
  • Fjármála- og áhættugreining á rekstri sem nær til næstu 10 ára
  • Sett á laggirnar innri endurskoðun innan sveitarfélagsins með það fyrir augum að tryggja að ávallt sé farið vel með fjármuni sveitarfélagsins og rétt þjónusta sé veitt.
  • Bylting í stafrænni þjónustu bæjarins í þágu hraðari afgreiðslu og aukinnar þjónustu við íbúa

Áherslur og aðgerðir

Íbúalýðræði og samráð
Við ætlum að þróa áfram leiðir til innihaldsríks samráðs við íbúa, meðal annars með auknu aðgengi að kjörnum fulltrúum og fjölbreyttum samráðsleiðum. Við viljum tryggja að börn og ungmenni fái lýðræðislega aðkomu að málefnum bæjarins og að rödd þeirra heyrist t.d. með Krakka Mosó og eflingu ungmennaráðsins.

Aðgengi að þjónustu
Við munum halda áfram að bæta aðgengi að þjónustu á víðum grunni, til dæmis með því að halda áfram stafrænni vegferð og með því að setja upp aðgengileg stafræn mælaborð. Fólk geti fylgst með stöðu mála sinna rafrænt.

Ráð og nefndir Mosfellsbæjar

Við viljum styrkja faglegt starf fagnefnda bæarins. 

Ábyrgur rekstur

Við munum halda áfram að reka Mosfellsbæ með ábyrgum hætti og tryggja að reksturinn sé sjálfbær og réttu megin við núllið. Það gerum við með skýrri forgangsröðun, aðhaldi í rekstri og skilvirkri nýtingu fjármuna.

Við munum standa vörð um grunnþjónustu við íbúa, á sama tíma og við tryggjum svigrúm til uppbyggingar. Markmiðið er stöðugleiki í rekstri, ábyrg fjármálastjórn og traust til framtíðar.

 

Samfylkingin birtir auglýsingar á samfélagsmiðlum og í gegnum auglýsingamiðlara til þess að koma skilaboðum sínum á framfæri til þeirra sem flokkurinn telur gagn hafa að. Er það gert með því að óska eftir því að þessir aðilar birti auglýsingarnar þeim notendum sínum sem uppfylla ákveðin skilyrði. Samfylkingin fær aldrei neinar persónuupplýsingar til sín um notendur. Breyturnar sem unnið er með eru aldur, kyn og búseta. Nánari upplýsingar um persónuverndarstefnu Samfylkingarinnar.