Fjölskyldan númer eitt
Kosningastefna Samfylkingarinnar á Akranesi 2026 - 2030
1. Fjölskyldan númer eitt
- Frístundastyrkur fyrir öll börn - Hækkum frístundastyrki frá 5 - 18 ára í 80.000 kr. og hlutastyrk fyrir yngri börn. Vinnum áfram með ÍA við að lækka kostnað barnafjölskyldna vegna fjölbreyttrar íþróttaiðkunar.
- Systkinaafsláttur á leikskólum - Við viljum 100% systkinaafslátt á leikskólum til þess að lækka kostnað barnafjölskyldna.
- Eflum umferðaröryggi - Fjölgum gangbrautum og betrumbætum lýsingu á götum og stígum, sérstaklega á leiðum barna í og úr skóla.
- Leikvellir - Bætum til muna leikvelli bæjarins og tryggjum að viðhaldi þeirra sé sinnt. Fjölgum fjölbreyttum leiktækjum á leikvöllum sem nýtast öllum. Hefjum strax framkvæmdir á Merkurtúni.
- Bætum ferðaþjónustu fatlaðra - Við viljum bæta ferðaþjónustu fatlaðra svo að hún mæti daglegum þörfum þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda.
- Skammtímadvöl - Byggjum skammtímadvöl við Laugarbraut fyrir fötluð börn og ungmenni.
- Samfelld þjónusta - Tryggjum að færsla fatlaðra barna í fullorðinsþjónustu sé eins áreynslulaus og kostur er fyrir þau og foreldra þeirra.
- Samfélagsmiðstöð - Við viljum tryggja nútíma húsnæði fyrir þær starfseiningar sem hugsaðar voru í Samfélagsmiðstöð, en taka ákvörðun með hagaðilum um framtíðina.
- Aðgengi á Akranesi - Bætum aðgengi fólks með skerta hreyfigetu að öllum mannvirkjum bæjarins, leggjum áherslu á gatnakerfi og göngustíga sem virka fyrir öll.
- Heimili fyrir fjölskyldur - Tryggjum að á Akranesi séu heimili sem nýtast ólíkum hópum, svo sem ungu fólki, einstæðum foreldrum, eldra fólki, fötluðu fólki, lágtekjufólki og stækkandi fjölskyldum. Styðjum áfram við uppbyggingu óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga.
2. Íþróttabærinn Akranes
- Íþróttaval barna - Förum í markvissa vinnu með ÍA og tryggjum að yngstu iðkendur geti prófað fjölbreyttar íþróttir.
- Íþróttir fyrir öll - Aukum félags- og íþróttastarf fyrir fatlaða í bænum.
- Framtíð Jaðarsbakka - Mótum uppbyggingu íþróttasvæðisins og framtíð þess með ÍA. Byggjum upp aðalvöllinn og gervigrasvöll á æfingasvæði.
- Jaðarsbakkalaug - Bætum aðstöðu og afþreyingu í Jaðarsbakkalaug.
- Ný innisundlaug - Tökum ákvörðun um staðsetningu og byggingu nýrrar innisundlaugar í samstarfi við hagaðila.
- Bjarnalaug - Bætum aðgengi og aðstöðu Bjarnalaugar fyrir öll og sýnum henni virðingu sem einu af kennileitum Akraness.
- Garðavöllur - Styðjum við stækkun og þróun Garðavallar til framtíðar í samstarfi við Golfklúbbinn Leyni.
3. Rödd unga fólksins
- Eflum félagsstarf - Lengjum opnunartíma félagsmiðstöðva fyrir börn og ungmenni, til dæmis með aukinni opnun yfir sumarið og sértæku félagsstarfi fyrir ólíka hópa með mismunandi þarfir.
- Skapandi sumarstörf - Höfum vinnuskólann í takt við nútímasamfélag með skapandi sumarstörfum.
- Forvarnir - Íþróttir, félagsmiðstöðvar og annað frístundastarf leikur lykilhlutverk í forvörnum barna og ungmenna. Eflum forvarnir í gegnum faglegt starf og grípum einstaklinga sem sýna áhættuhegðun.
- Öflugt og samþætt átak - Vinnum gegn einelti og félagslegri einangrun, leggjum áherslu á fræðslu og samkennd í félagsmiðstöðvum og frístundastarfi, í samvinnu við foreldra og fagaðila.
- Rödd unga fólksins - Eflum barna- og ungmennalýðræði á Akranesi. Hlustum á raddir ungmenna og sinnum þeim verkefnum sem þau kalla eftir í bænum sínum.
4. Skólasamfélag í fremstu röð
- Barngildi - Hækkum barngildi í leikskólum um 0,2 á hverri deild og bætum
starfsaðstæður með það að markmiði að minnka áreiti og álag bæði á börn og starfsfólk. - Lögfesting leikskóla - Vinnum með ríkinu að tryggri fjármögnun leikskólastigsins og lögfestingu á rétti barna til leikskólavistar, með það að markmiði að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.
- Nýr leikskóli á Neðri-Skaga - Hefjum framkvæmdir á nýjum leikskóla á Neðri-Skaga.
- Stuðningur í skólum - Eflum snemmtækan stuðning í leikskólum og aukum aðgengi að fagaðilum á borð við þroskaþjálfa, sálfræðinga og talmeinafræðinga í öllum skólunum okkar.
- Næsti grunnskóli - Hefjum undirbúning að þriðja grunnskólanum í samstarfi við skólasamfélagið.
- Skólalóðir - Bætum lóðir grunnskólanna og höldum þeim vel við.
- Íslenskukennsla - Aukum íslenskukennslu barna með annað móðurmál en íslensku og horfum til samstarfs milli grunnskólanna í þeim efnum.
5. Fólkið sem byggði landið
- Dvalarheimilið Höfði - Ljúkum við fyrirhugaða stækkun Höfða í samstarfi við ríkið.
- Gott að eldast - Tryggjum eldra fólki samfellda þjónustu sem uppfyllir þarfir hvers og eins og styðjum við sjálfstæði þeirra.
- Tökum ábyrgð hvert á öðru - Komum í veg fyrir einangrun og einmanaleika með stuðningi við eldra fólk í gegnum félagsstarfið.
- Endurhæfing eldra fólks - Dagþjálfun miðar að því að viðhalda færni, bæta lífsgæði og styðja við sjálfstæða búsetu. Finnum leiðir til þess að bæta aðgengi að þjónustu og þjálfun í samvinnu við Höfða.
6. Lifandi bær
- Menningarhús - Eflum listsköpun og menningarþátttöku í bænum. Tryggjum húsnæði sem yrði miðstöð menningar á Akranesi, í samstarfi við ríkið.
- Strandlengjan - Eflum haftengda upplifun með því að tengja strandstíginn meðfram allri strandlengju Akraness með áningarstöðum og tryggjum aðgengi fyrir öll að náttúruperlum bæjarins.
- Fegrum bæinn - Aukum gróður í bænum. Fjölgum listaverkum, leiktækjum, bekkjum og hreystiaðstöðu fyrir bæjarbúa á öllum aldri.
- Eflum miðbæinn - Horfum á Akratorgið sem miðpunkt mannlífs og menningar með tilkomu hótels, endurnýjun Kirkjubrautar og uppbyggingu Sementsreitsins.
- Menning og listir - Bætum aðstöðu og möguleika til menningarviðburða í bænum, til dæmis í tónlistarskólanum og á bókasafninu.
7. Framtíð fyrir fólk og fyrirtæki
- Vatn og orka - Fylgjum því eftir að fyrirheit Veitna og Landsnets verði efnd varðandi stækkun vatnsveitu og aukna raforku.
- Akraneshöfn - Stækkum athafnasvæði við Akraneshöfn. Bætum aðstöðu til sjósetningar og stuðlum að því að hafsækin starfsemi geti vaxið og dafnað á Akranesi í samstarfi við Faxaflóahafnir.
- Þjónusta við fyrirtæki - Eflum rekstrarumhverfi fyrirtækja með einfaldara regluverki og skýrum samskiptum við stjórnsýslu, með það markmið að hraða afgreiðslu án þess að gefa afslátt af góðum vinnubrögðum.
- Samtal við atvinnulífið - Við viljum stuðla að samráðsvettvangi milli fyrirtækja og bæjaryfirvalda á Akranesi með það að markmiði að auka samskipti og samstarf.
- Starfsemi Heilbrigðisstofnunar Vesturlands - Starfsemi sjúkrahússins á Akranesi þarfnast meira rýmis. Með því að færa heilsugæslustöðina í samstarfi við ríkið er hægt að bæta aðgengi og þjónustu við íbúa.
- Breiðarsvæðið - Við viljum halda áfram og ljúka við skipulagsvinnu á Breiðarsvæðinu.
- Kynnum Akranes - Eflum kynningarstarf bæjarins á sviði ferðamála og sköpum aðstæður í bænum fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu. Setjum upp Instagram ramma og tengjum við kennileiti bæjarins.
- Skagapassinn - Setjum í gang Skagapassann sem veitir afslátt af aðgangseyri safna, sundlauga og viðburða fyrir gesti.
- Atvinnuþátttaka - Við viljum að bærinn sýni gott fordæmi og bjóði upp á fjölbreytt störf fyrir fólk með skerta starfsgetu.
8. Rekstur og þjónusta
- Ábyrgur rekstur - Við leggjum áherslu á góðan og skilvirkan rekstur og að hver króna nýtist á sem bestan hátt í þjónustu við íbúa.
- Mikilvægar eignir - Akranes nýtur þess að eiga hlut í innviðafyrirtækjum eins og Orkuveitunni og Faxaflóahöfnum. Á okkar vakt verða þau aldrei seld úr opinberri eigu.
- Viðhald gatna og stíga - Við viljum gera átak í viðhaldi gatna og stíga bæjarins. Áætlanir og framkvæmdir skulu kynntar íbúum.
- Fasteignir bæjarins - Nauðsynlegt er að sinna viðhaldi fasteigna bæjarins jafnt og þétt til að spara kostnað.
- Þjónustukjarni - Færum stjórnsýslu bæjarins á einn stað og semjum við ríkið um rými fyrir heilsugæslu, Náttúrufræðistofnun, embætti sýslumanns og önnur sérfræðistörf í sama húsnæði.
- Aðstaða viðbragðsaðila - Tryggjum viðunandi starfsaðstöðu fyrir slökkvilið, sjúkraflutninga og björgunarsveitina í bænum.
- Svæðisskipulag norðan Hvalfjarðar - Vinnum saman með nágrannasveitarfélögum að svæðisskipulagi norðan Hvalfjarðar. Eflum samvinnu og grípum tækifærin með nágrönnum okkar.