Frestir í flokksvali 2016

Nú um helgina rennur út frestur til að bjóða sig fram í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi. Lokafrestur til að skila inn framboðum er laugardaginn 3. september klukkan 19.00.
Á sama tíma rennur út frestur til að skrá sig sem félaga eða stuðningsmann vegna flokksvalsins.
Kjörskrá verður lokað laugardaginn 3. september kl. 19.00 og verða þá allir þeir sem vilja vera á kjörskrá að hafa staðfest skráningu sína með því að svara staðfestingarpósti sem þeim berst við rafræna skráningu.
Einungis er tekið við skráningum sem berast í gegnum vef flokksins eða með því að fylla rétt út þar til gert eyðublað með eiginhandarundirritun.
Kosning fer fram rafrænt gegnum vef Samfylkingarinnar 8.-10. september. Heimilt verður að kjósa skriflega á kjörstað á skrifstofu Samfylkingarinnar Hallveigarstíg 1 í Reykjavík fimmtudaginn 8. september kl. 13.00-19.00, föstudaginn 9. september kl. 13.00-19.00 og laugardaginn 10. september kl. 10.00-17.00.