Vilja að ríkið reisi 1000 leiguíbúðir á ári

Samfylkingin vill að ríkisstjórnin komi að uppbyggingu 1000 leiguíbúða á ári næstu 4 árin. Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu sem þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram á Alþingi.

„Það er nauðsynlegt að stjórnvöld komi að þeirri uppbyggingu sem er framundan og tryggi að sú uppbygging nýtist til að efla leigumarkaðinn,“ segir í greinargerð með tillögunni. „Stjórnvöld verða að tryggja að byggt verði húsnæði sem hentar barnafjölskyldum, ungu fólki og launafólki sem á ekki mikinn sparnað og hefur ekki notið góðs af hækkun húsnæðisverðs á liðnum árum.“