Helga Vala og Ágúst Ólafur leiða í Reykjavík
Endurnýjun á listum Samfylkingarinnar í Reykjavík – Jafnaðarstefnan mikilvægari en nokkru sinni
Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður, og Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og leikkona, munu leiða lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur í komandi Alþingiskosningum. Framboðslistar flokksins voru samþykktir með lófataki á fjölmennum fundi á Reykjavík Natura í dag.
Helga Vala leiðir listann í Reykjavík norður en í 2. sæti á eftir henni situr Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður. Ágúst Ólafur leiðir í Reykjavík suður og á eftir honum kemur Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri við Háskólann í Reykjavík. Listana í heild sinni er að finna hér að neðan.
Mikil stemning var á fundinum og eindrægni í máli þess mikla fjölda flokksmanna Samfylkingarinnar sem fundinn sóttu.
Ágúst Ólafur Ágústsson er fyrrverandi alþingismaður og varaformaður Samfylkingarinnar. Ágúst hefur upp á síðkastið unnið sem aðjúnkt við Háskóla Íslands. Hann er fyrrverandi efnahagsráðgjafi forsætisráðherra, sat í bankaráði Seðlabanka Íslands og vann um tíma hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. Ágúst Ólafur hefur hlotið viðurkenningu Barnaheilla fyrir að sérstök störf í þágu barna og hafa með störfum sínum bætt réttindi og stöðu barna. Ágúst er lögfræðingur og hagfræðingur að mennt.
Helga Vala Helgadóttir er héraðsdómslögmaður og leikkona auk þess sem hún er umboðsmaður rokkhljómsveitarinnar Mammút. Helga Vala starfaði um árabil á fjölmiðlum þar sem hún sinnti dagskrárgerð af ýmsum toga áður en hún sneri sér að fullu að lögmennsku en hún er eigandi Völvu lögmanna. Í lögmannsstörfum sínum hefur Helga Vala meðal annara sinnt réttargæslu fyrir brotaþola kynferðisbrota, sinnt mannréttindamálum og málefnum útlendinga, barna- og fjölskyldurétti auk annars.Síðustu ár hefur Helga Vala sinnt fjölmörgum trúnaðarstörfum, meðal annars setið í stjórn Félags íslenskra leikara, í Þjóðleikhúsráði og Höfundarréttarráði. Árin 2009-2010 var Helga Vala formaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík.
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri Tengsla hjá Háskólanum í Reykjavík en þar hefur hún starfað síðastliðin sex ár. Þar áður starfaði Jóhanna Vigdís sem framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík, sem markaðsstjóri Borgarleikhússins og sem forstöðumaður markaðsmála Straums-Burðaráss fjárfestingabanka. Jóhanna Vigdís er menntuð í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands, með MSc-gráðu í menningarfræði frá Edinborgarháskóla og MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Í störfum sínum undanfarin ár hjá Háskólanum í Reykjavík hefur Jóhanna Vigdís lagt höfuðáherslu á uppbyggingu alþjóðlegs samstarfs og verkefni sem snúa að því að auka veg stúlkna og kvenna í tæknigreinum.
Páll Valur Björnsson er fyrrverandi alþingismaður og sat áður í bæjarstjórn Grindavíkur. Páll Valur er menntaður grunnskólakennari og starfar nú sem kennari við Fiskvinnsluskólann í Grindavík en hefur áður meðal annars sinnt kennslu í Grunnskóla Grindavíkur og Njarðvíkurskóla. Páll Valur lagði í þingstörfum sínum mikla áherslu á mannréttindi, velferðamál og ekki síst á málefni barna. Páli Vali voru á síðasta ári veitt Barnaréttindaverðlaun ungmennaráðs UNICEF á Íslandi, Barnaheilla og ráðgjafarhóps umboðsmanns barna fyrir óþreytandi baráttu sína fyrir hagsmuni barna, ekki síst þeirra sem höllum fæti standa í samfélaginu.
REYKJAVÍK SUÐUR
- Ágúst Ólafur Ágústsson háskólakennari
- Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri
- Einar Kárason rithöfundur
- Ellert B. Schram formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og fyrrv. alþingismaður
- Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar
- Þórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri SFR stéttarfélags og leikstjóri
- Inga Auðbjörg Kristjánsdóttir vefsmiður, kaos-pilot og athafnastjóri Siðmenntar
- Guðmundur Gunnarsson fyrrv. formaður Rafiðnaðarsambands Íslands
- Margrét M. Norðdahl myndlistarkona
- Reynir Sigurbjörnsson rafvirki
- Sigríður Arndís Jóhannsdóttir verkefnastjóri þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða
- Tómas Guðjónsson stjórnmálafræðinemi
- Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir laganemi
- Hlal Jarah veitingamaður á Mandi
- Ragnheiður Sigurjónsdóttir uppeldisfræðingur
- Reynir Vilhjálmsson eðlisfræðingur og framhaldsskólakennari
- Halla B. Thorkelsson fyrrverandi formaður Heyrnarhjálpar
- Ída Finnbogadóttir mannfræðingur og varaformaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík
- Sigurður Svavarsson bókaútgefandi
- Signý Sigurðardóttir viðskiptafræðingur
- Björgvin Guðmundsson viðskiptafræðingur og fyrrv. borgarfulltrúi
- Jóhanna Sigurðardóttir fyrrv. forsætisráðherra
REYKJAVÍK NORÐUR
- Helga Vala Helgadóttir lögmaður og leikkona
- Páll Valur Björnsson grunnskólakennari
- Eva Baldursdóttir lögfræðingur
- Þórarinn Snorri Sigurgeirsson sagnfræðingur og formaður Ungra jafnaðarmanna
- Nikólína Hildur Sveinsdóttir mannfræðinemi
- Þröstur Ólafsson hagfræðingur
- Sigríður Ásta Eyþórsdóttir (Sassa) iðjuþjálfi í Hagaskóla
- Hallgrímur Helgason rithöfundur og myndlistarmaður
- Anna Margrét Ólafsdóttir leikskólastjóri
- Óli Jón Jónsson kynningar- og fræðslufulltrúi BHM
- Edda Björgvinsdóttir leikkona og menningarstjórnandi
- Birgir Þórarinsson (Biggi veira) tónlistarmaður í GusGus og DJ
- Jana Thuy Helgadóttir túlkur
- Leifur Björnsson rútubílstjóri og leiðsögumaður
- Vanda Sigurgeirsdóttir uppeldis- og menntunarfræðingur
- Hervar Gunnarsson vélstjóri
- Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari
- Þorkell Heiðarsson líffræðingur og tónlistarmaður
- Ingibjörg Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur
- Gunnar Lárus Hjálmarsson (Dr. Gunni) tónlistarmaður
- Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur og fyrrv. þingkona
- Dagur B. Eggertsson borgarstjóri