Flokksval 2018 í Reykjavík
Nú styttist í flokksvalið vegna borgarstjórnarkosninganna!
Kynningarfundur með frambjóðendum fer fram í Iðnó, laugardaginn 3. febrúar kl. 17-19.
Fjórtán öflugir frambjóðendur gefa kost á sér. Á kynninarfundinum munu þau Oddný Sturludóttir og Þórarinn Eyfjörð spyrja þau spjörunum úr um áherslur þeirra og framtíðarsýn. Síðan gefst fundargestum kostur á að spjalla við þau á borðum í sal. Við lofum fjörugum og upplýsandi fundi!
Flokksvalið sjálft fer svo fram frá kl. 12 þann 9. febrúar til kl. 19. þann 10. febrúar í rafrænni kosningu með íslykli eða rafrænum skilríkjum á www.xs.is Utankjörfundaratkvæðagreiðsla verður á Hallveigarstígnum dagana 8. og 9. febrúar frá kl. 14-17 og 10. febrúar frá kl. 14-19. Úrslit verða tilkynnt laugardagskvöldið 10. febrúar á Bergson RE.
Frambjóðendurnir eru:
- Skúli Helgason, borgarfulltrúi 3. sæti
- Teitur Atlason, fulltrúi á Neytendastofu 7.-9. sæti
- Þorkell Heiðarsson, náttúrufræðingur 5.-7. sæti
- Aron Leví Beck, málari og byggingarfræðingur 3. sæti
- Dagur B. Eggertsson, læknir og borgarstjóri 1. sæti
- Dóra Magnúsdóttir, varaborgarfulltrúi og leiðsögumaður 4. sæti
- Ellen Calmon, fyrrverandi formaður ÖBÍ 5. sæti
- Guðrún Ögmundsdóttir, tengiliður vistheimila og fyrrverandi þingkona 5.-7. sæti
- Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar 2. sæti
- Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi 3. sæti
- Kristín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi 2. sæti
- Magnús Már Guðmundsson, formaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar og formaður SffR 4. sæti
- Sabine Leskopf, varaborgarfulltrúi 3.-4. sæti
- Sigríður Arndís Jóhannsdóttir, verkefnastjóri 4.-6. sæti
Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna á síðu flokksvalsins.