Landsfundur 2.-3. mars 2018

Landsfundur Samfylkingarinnar verður haldinn dagana 2. og 3. mars á Reykjavík Natura. Landsfundur er opinn öllum flokksfélögum Samfylkingarinnar með málfrelsi og tillögurétt.

Aðildarfélögum ber að kjósa kjósa atkvæðisbæra fulltrúa úr hópi félagsmanna sinna. Ef þú hefur áhuga á að fara á landsfundinn og taka þátt í starfi Samfylkingarinnar sem fulltrúi félagsins þá skaltu endilega hafa samband við þitt aðildarfélag til að gerast landsfundarfulltrúi en kosningu fulltrúa á landsfundinn lýkur eigi síðar en 8. febrúar n.k.

 

Mikilvægar dagsetningar í undirbúningi landsfundar

 

Mánudaginn 15. janúar, 45 dögum fyrir landsfund rennur út lokafrestur til að krefjast allsherjaratkvæðagreiðslu vegna formannskjörs.

Fimmtudaginn 18. janúar er í síðasta lagi hægt að skila inn tillögum til breytinga á lögum flokksins. Breytingatillögum skal skilað inn til skrifstofu flokksins Hallveigarstíg 1, eða á netfangið [email protected].

Fimmtudaginn 1. febrúar eiga formenn aðildarfélaga að skila niðurstöðum/tillögum félagsfunda eftir umfjöllun þeirra um málefnatillögurnar til [email protected]  Sama dag rennur út frestur til að skila tillögum að ályktunum frá aðildarfélögum eða einstökum félagsmönnum sem fjalla á um á landsfundi 2018 til [email protected].

Föstudaginn 9. febrúar eiga listar yfir fulltrúa aðildarfélaga á landsfundi að liggja fyrir lögum samkvæmt. Aðildarfélög skulu senda framkvæmdastjórn lista með nöfnum kjörinna landsfundarfulltrúa.

Fimmtudaginn 22. febrúar rennur út frestur til að skila formannsframboði  inn til framkvæmdastjórnar til [email protected].

2. mars Landsfundur settur

Formaður Landsfundarnefndar er Sigríður Ingibjörg Ingadóttir

Eitt samfélag fyrir alla – Tillaga að stefnu Samfylkingarinnar fyrir landsfund 2018