Stöndum vörð um réttindi launafólks

Þingflokkur Samfylkingarinnar mótmælir harðlega uppsögnum Icelandair á flugfreyjum og flugþjónum og fordæmir slíkar aðferðir í kjaradeilum.
Það er skylda samningsaðila að ná samningum sem báðir aðilar geta fellt sig við.
Réttur stéttarfélaga til að gera kjarasamninga fyrir hönd sinna félagsmanna er ein undirstaða velferðarsamfélagsins. Þessu hefur verkalýðshreyfingin náð fram með áralangribaráttu og þær leikreglur ber að virða.
Þingflokkurinn minnir á að Icelandair nýtur margvíslegrar fyrirgreiðslu af hálfu ríkisins og ríkisstjórnin hefur hér hlutverki að gegna.
Höldum vöku okkar og stöndum öll vörð um réttindi launafólks í landinu.
Þingflokkur Samfylkingarinnar