Fjölgun starfa lykilatriði

Grein eftir Helgu Völu Helgadóttur þingmann Samfylkingarinnar sem birtist fyrst í Morgunblaðinu 29. ágúst.

Helga Vala Helgadóttir Þingmaður

Stjórnvöld standa frammi fyrir miklum vanda sem leiðir af Covid 19 faraldrinum. Fyrir utan heilsufarsvá sem fylgir veirunni þarf að bregðast hratt við sívaxandi atvinnuleysi. Það er ekki síður heilsufarsvá, því brottfall af vinnumarkaði með tilheyrandi tekjufalli og á stundum einangrun getur haft veruleg áhrif á heilsu fólks. Stjórnvöld hafa brugðist hratt við ýmsum efnahagslegum áskorunum til að halda fyrirtækjum gangandi en minna hefur borið á raunverulegum úrræðum til að fjölga störfum og minnka atvinnuleysi. 

 

Sú kreppa sem við stöndum nú frammi fyrir er ólík þeirri sem leiddi af bankahruninu 2008. Þá stóðu nánast allar fjölskyldur frammi fyrir mikilli hækkun lána auk atvinnuleysis en nú snertir kreppan landsmenn á ólíkan hátt. Verðbólgan er sem betur fer ekki farin af stað svo enn sem komið er hafa afborganir af lánum landsmanna og verðlag ekki hækkað svo heitið geti. En til þess að halda þessu í skefjum verða stjórnvöld að gera allt til að fjölga störfum. Áður höfum við í Samfylkingunni talað um ábyrgð stjórnvalda þar. Það er vel hægt að fjölga í geirum hjá hinu opinbera sem til þessa dags hefur verið undirmannaður um margra ára skeið. Skortur á hjúkrunarfræðingum hefur beinlínis komið í veg fyrir eðlilegt flæði aðgerða á heilbrigðisstofnunum sem leitt hefur til ofálags á þá hjúkrunarfræðinga sem þar eru sem svo áfram leiðir til kulnunar og flótta úr starfi. Sama er uppi á teningnum í lögregluliði landsins. Lögreglumenn eru færri í dag en fyrir tíu árum, þrátt fyrir fjölgun íbúa og áður umtalsverðan fjölda ferðamanna, sem við skulum nú vona að heimsæki okkur að nýju áður en langt um líður. Hver og einn lögreglumaður þarf að sinna mun fleiri verkefnum og taka á sig fleiri og fleiri yfirvinnutíma, rétt eins og hjúkrunarfræðingar. Þetta ástand getur svo leitt til mistaka í starfi og eins og áður segir, kulnunar vegna ofálags um árabil. Núna er tækifærið til að leysa þetta og kalla þá hjúkrunarfræðinga og lögreglumenn sem höfðu flúið bág starfskjör og starfsaðstæður inn í ferðaþjónustuna aftur til starfa. 

 

Annað úrræði vil ég nefna sem hvatningu til fjölgunar starfa. Á árunum eftir bankahrun var farið í fjölbreyttar aðgerðir til að fækka atvinnulausum og má þar nefna átakið “vinnandi veg” sem tókst prýðilega. Þar var fyrirtækjum veittur fjárhagsstuðningur til að ráða inn fólk af atvinnuleysisskrá. Stjórnvöld greiddu hluta launa starfsmanna í allt að 12 mánuði sem ráðnir voru af atvinnuleysisskrá. Þetta varð til þess að starfsfólk fór af atvinnuleysisbótum og í starf sem mögulega varð til framtíðar. Fyrirtækin fundu framleiðnina aukast og starfsfólkið sem áður hafði beðið eftir störfum komst í virkni. Framlag stjórnvalda vegna atvinnuleysisbóta lækkaði og allir græddu. Þetta verkefni á að ráðast í núna strax og hefði og vil ég hvetja stjórnvöld til þess á tafar. Því lengur sem atvinnuleysi variri því meiri líkur eru á félagslegum og heilsufarslegum vanda fjölskyldna. Boltinn er hjá stjórnvöldum.