Guðmundur Andri:„Ábyrga leiðin út úr vandanum snýst um að tryggja lágmarksafkomu þeirra sem veikast standa“

Ræða Guðmundar Andar þingmanns Samfylkingarinnar í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi þann 1. október 2020.  

„Vonin styrkir veikan þrótt, / vonin kvíða hrindir, / vonin hverja vökunótt / vonarljósin kyndir. // Vonin mér í brjósti býr, / besti hjartans auður. / Vonin aldrei frá mér flýr / fyrr en ég er dauður.“

 Þannig orti Páll Ólafsson, skáldið góða á 19. öld um vonina, þetta óumræðilega afl sem við þurfum nú á að halda sem aldrei fyrr andspænis krefjandi verkefnum dagsins.

Og vonarljósin loga víða – þau eru tendruð af listamönnunum sem hjálpa okkur að túlka og tjá óskiljanlegt ástand og eru samfélagshópur sem þarf sérstaklega að muna eftir. Þau eru tendruð hjá vísindamönnunum sem hjálpa okkur að greina og skilja vágestinn og ná tökum á honum til að geta ráðið niðurlögum hans – og eru annar hópur sem þarf að gæta þess að hafi starfsgrundvöll. Þau loga hjá því fólki sem annast um veikt fólk og hjálpa því til að ná heilsu og þau loga hjá öllum þeim sem ganga daglega til sinnar vinnu og sinna þörfu starfi.

Og vonarljósin þurfa líka að vera leiðarljós í komandi uppbyggingarstarfi. Þá er gott að muna eftir grunngildum jafnaðarstefnunnar eins og hún þróaðist á hinum Norðurlöndum: að reyna alltaf að finna réttláta og sanngjarna skiptingu á gæðum og byrðum, taka almannahagsmuni fram yfir sérhagsmuni, efla velferð og iðka skynsamlega hagstjórn þar sem ábyrgðarkennd helst í hendur við samhjálp.

Jafnaðarstefnan er ábyrga leiðin út úr vandanum. Nú duga augljóslega ekki úreltar kreddur og kennisetningar nýfrjálshyggjunnar.

Ábyrga leiðin út úr vandanum snýst um að tryggja lágmarksafkomu þeirra sem veikast standa eftir að hafa misst vinnu eða þurfa að treysta á samhjálp. Það er ekki bara rétt vegna þess að fátækt á ekki að sjást í okkar ríka samfélagi heldur líka vegna þess að það örvar hagkerfið.

Ábyrga leiðin snýst um að hækka atvinnuleysisbætur svo að þær nái lágmarkslaunum enda fráleitt að segja atvinnulausu fólki að leita sér bara að vinnu, þegar enga vinnu er að fá.  

Ábyrga leiðin snýst um að veita fjármunum til að skapa störf, styðja lítil fyrirtæki sem byggja á snjöllum hugmyndum, áræði og ástríðu.

Ábyrga leiðin snýst um að veita fé til þess að efla menntun til að búa í haginn fyrir gott og auðugt mannlíf í framtíðinni.

Ábyrga leiðin snýst um að gera stórátak í loftslagsmálum til að búa í haginn fyrir yfirleitt eitthvað mannlíf í framtíðinni.

Ábyrga leiðin snýst líka um að kannað sé án þess að eiginhagsmunaverðir ráði för hvort við eigum að taka upp evru sem gjaldmiðil og hvort við eigum að ganga alla leið inn í Evrópusambandið, þar sem öll okkar helstu viðskiptalönd eru og koma sér saman um leikreglur á markaði jafnt fyrir yfirþjóðlega risa sem þjóðarkríli eins og okkur. 

Virðulegi forseti, í morgun birtist í Fréttablaðinu könnun sem sýndi að ráðherrar ríkisstjórnarinnar njóta upp til hópa ámóta trausts og fylgistölur Donalds Trump eru hér á landi. Slíkt vantraust á ráðamönnum getur verið beinlínis hættulegt lýðræðinu. Ein ástæða þess er að kjósendur telja sig ekki geta treyst því að atkvæði þeirra styrki í raun og veru þá stjórnmálastefnu sem þeir aðhyllast. Þessi ríkisstjórn gerir iðulega tilkall til að spanna allt litróf íslenskra stjórnmála en það vantar svo mörg litbrigði í hana að hún líkist í raun og veru meira þoku en regnboga.