Logi endurkjörinn formaður Samfylkingarinnar

Rafrænn landsfundur Samfylkingarinnar var settur í dag.Logi Már Einarsson var einn í framboði til formanns og hlaut96,45 % atkvæðakjörinuKjörið endurspeglar ánægju og traust flokksfélaga til hans og hans starfa í þágu flokksins.

Ræða Loga eftir formannskosningu:

„Kæru félagar – ég er djúpt snortinn – og þakka ykkur innilega fyrir það traust sem þið sýnduð mér í dag.

Ég lofa ykkur því að rísa undir þeirri ábyrgð sem mér er falin – að leiða flokkinn inn í mikilvægar kosningar eftir tæpt ár.

Lífskúnstnerinn, Vopnfirðingurinn og Alþingismaðurinn Jónas Árnason sagð einhverju sinni í texta að lífið væri lotterí – og það gilti að taka þátt í því.  Á dauða mínum átti ég frekar von fyrir nokkrum árum en að standa hér í dag – En hér er ég og er ótrúlega glaður yfir því að lífið hafið borið mig hingað – kynnt mig fyrir ykkur og í starf fyrir stjórnmálahreyfingu sem ég brenn fyrir.

En líkt og Siglufjarðar-Geiri í kvæðinu hef bæði ég og flokkurinn sopið ýmsa fjöruna – og eigum eflaust eftir að upplifa ýmislegt enn– en besta ráðið við því er að sýna æðruleysi og kjark.

Við erum komin á lappir eftir tímabundna byltu og ætlum okkur enn meira.

Í mínum huga er stjórnmálastarf hópvinna – þar sem breið ásýnd, vinátta og samheldni flokksfólks helst í hendur við skýra og góða stefnu.

Flokkurinn okkar hefur líka á að skipa óvenjumörgum hæfileikaríkum einstaklingum eins og endurspeglast í öllum þeim kosningunum sem framundan eru.

Við skulum öll hafa þetta í huga sama hver niðustaðan er – og sækja saman til sigurs næsta árið.

Kærar þakkir. “