Reykjavíkurborg snýr vörn í sókn með Græna planinu

Í Græna planinu, eins og viðbragðsáætlun borgarinnar kallast, eru kynntar leiðir til að skapa störf og örva efnahagslífið sem munu skila borginni sterkari og grænni út úr efnahagsþrengingunum.
Við viljum snúa vörn í sókn og kynnum umfangsmikla viðspyrnuáætlun. Heildarfjárfesting samstæðu borgarinnar næstu þrjú ár nemur 175 milljörðum króna. Efnahagssamdrætti og tekjufalli verður mætt með lántökum en borgin nýtir styrk sinn og mun vaxa út úr samdrættinum á nokkrum árum. Við leggjum fram sóknaráætlun til skammtíma og ábyrga græna sýn um sjálfbærni á öllum sviðum til lengri tíma. Græna planið er efnahagsleg, umhverfisleg og samfélagsleg sóknaráætlun út úr kórónuveirukreppunni og þannig getum við bæði staðið vörð um störfin, skapað ný störf og búið til samfélag þar sem allir geta verið virkir þátttakendur
Reykjavíkurborg hefur lagt fram fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2021 og fimm ára áætlun 2021 - 2025 í ráðhúsinu. Gert er ráð fyrir töluverðum halla á næsta ári en með markvissum aðgerðum er gert ráð fyrir að borgin verði komin réttu megin við núllið eftir þrjú ár.
Borgin ætlar að nýta sterka stöðu sína og lágt skuldahlutfall til að mæta efnahagsáfallinu sem kórónuveirufaraldurinn hefur skapað.
Metsamdráttur er í hagkerfinu og er atvinnuleysi meira en 10% í Reykjavík og tekjufallið gríðarlegt. Rekstrarniðurstaða samstæðu borgarinnar er neikvæð um 11,3 milljarða en gert er ráð fyrir að staðan verði orðin jákvæð eftir tvö ár þar sem högginu verður mætt með fjárfestingum fyrir um 28 milljarða á næsta ári og 175 miljarða á næstu þremur árum.
Styrkur borgarinnar verður þannig nýttur til að auka umsvif í landinu og verja störf. Aðgerðirnar munu draga úr atvinnuleysi og eftir munu standa grænni innviðir, þéttari byggð og sterkari borg sem auðveldar rekstur borgarinnar og gerir líf almennings í borginni betra.
Dæmi um lykilfjárfestingaverkefni í Reykjavík yfir tímabil Græna plansins til 2030:
1. 175 milljarða fjárfestingar á 3 árum
Á næstu þremur árum ætlar Reykjavíkurborg að verja 95 milljörðum í fjárfestingar. Stór hluti þeirra fellur undir grænar fjárfestingar. Fyrirtæki borgarinnar munu á sama tíma fjárfesta fyrir 80 milljarða, stærstu fjárfestingarnar verða í grænum innviðum og félagslegu húsnæði.
2. Milljarður í ný störf og 5 milljarðar árlega í ný húsnæðisúrræði
Milljarði króna verður varið í að búa til ný störf fyrir atvinnulausa, stuðningsúrræði og virkni fyrir fólk á fjárhagsaðstoð á næsta ári. Yfir 5 milljarðar verða lagðir árlega á næstu árum í átak í uppbyggingu búsetuúrræða fatlaðs fólks og fyrir heimilislausa og fjölgun félagslegra leiguíbúða
3. Græn samgöngubylting
Með Borgarlínu, orkuskiptum og hjólastígakerfi fyrir allt höfuðborgarsvæðið verður bylting í grænum samgöngum. Reykjavík verður hjólaborg á heimsmælikvarða. Grænar fjárfestingar í samgöngusáttmála ríkis og SSH í Reykjavík verða yfir 50 milljarðar til 2030.
4. 10 milljarðar í stafræna umbreytingu þjónustu
Allri þjónustu og afgreiðslu sem hægt er að færa á netið verður umbreytt á þremur árum með tíu milljarða fjárfestingu í upplýsingatækni og stafrænni umbreytingu borgarinnar.
5. Nýir skólar, græn hverfi
Nýir skólar rísa í Skerjafirði, Vogabyggð og Ártúnshöfða og leikskólaplássum verður fjölgað til að taka inn ársgömul börn. Nýju hverfin á Ártúnshöfða og í Skerjafirði verða grænustu hverfi sem risið hafa í Reykjavík.
6. 10 milljarðar í viðhaldsverkefni
Tíu milljörðum verður varið í viðhald næstu þrjú ár. Fjárveitingar til endurnýjunar eldra skólahúsnæðis verða stórhækkaðar og Borgarbókasafnið í Grófarhúsi og Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsi verða endurnýjuð.
7. Fjárfest í grænni borg
Götur í öllum hverfum fá grænna yfirbragð og meiri gróður, græn svæði og almenningsgarðar verða fegraðir, ásýnd borgarinnar verður blómlegri og skógrækt aukin með gróðursetningu Loftslagsskóga Reykjavíkur.
8. Þrjár nýjar sundlaugar, knatthús og íþróttaaðstaða
Lýðheilsa, hreyfing og íþróttaþátttaka verður efld með fimleikahúsum í Breiðholti og Árbæ, knatthúsi í Vesturbæ og betri íþróttaaðstöðu víða um borgina. Þrjár nýjar sundlaugar eru á tíu ára áætlun; í Úlfarsárdal, Fossvogi og í Elliðaárvogi.
9. Uppbygging útivistarsvæða um alla borg
Fleiri áningarstaðir og innviðir til útivistar byggðir upp í Elliðaárdal og Öskjuhlíð og sjóbaðsaðstaða útbúin við strandlengjuna. Vetrargarður í Breiðholti og skíðasvæðin í Bláfjöllum stórefld. Útivistaraðstaða bætt við Rauðavatn og á Hólmsheiði þar sem einnig verða gerðar reiðleiðir.
10. 10.000 íbúðir á 10 árum
Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að fjárfesta 12 milljarða í innviðum þar sem næstu 10.000 íbúðir í Reykjavík rísa. Þær verða af öllum stærðum og gerðum, fyrir allan aldur og tekjuhópa og flestar staðsettar nálægt Borgarlínu og lifandi atvinnukjörnum.
Reykjavíkurborg snýr vörn í sókn með Græna planinu sem er viðbragðsáætlun borgarinnar gegn kórónuveirufaraldrinum.
Hér er hægt er að skoða Græna planið.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2021 og fimm ára áætlun 2021-2026