Stefnuleysi í málefnum stóriðju ekki í boði

Rósa Björk
Rósa Björk,
Rósa Björk Brynjólfsdóttir Þingmaður

Gríðarlega miklar breytingar eru að eiga sér stað í orkugeiranum úti um allan heim. Samkeppnishæfni Íslands er að breytast sömuleiðis á ótrúlega miklum hraða. Verð á umhverfisvænum orkugjöfum er að lækka mikið og hratt, sér í lagi á sólar- og vindorku sem breytir allri samkeppnishæfni Íslands á örskömmum tíma. Sem dæmi hafa vindorkugarðar í sjó í Norður-Atlantshafi nú þegar lækkað raforkuverð á því svæði og áætlað er að lækkunin muni nema um 60% á næstunni samkvæmt færustu sérfræðingum.

Árið 2030 er á næsta leiti og fjölmörg lönd hafa sett sér gríðarlega metnaðarfull markmið varðandi samdrátt í útblæstri það ár miðað við árið 1990. Það er því miður dapurleg staðreynd að Ísland er ekki í hópi metnaðarfyllstu landa þegar kemur að viðmiðum í samdrætti í útblæstri, en þar skipta stóriðja, iðnaður og samgöngur langmestu máli. Það þarf nauðsynlega nýja nálgun af hálfu stjórnvalda í raforkuframleiðslu okkar Íslendinga og þar skiptir öllu máli að hugsa skapandi, vera óhrædd við hraðar breytingar og halda ekki í horfna tíma.

Loftslagsváin er stærsta viðfangsefni okkar tíma og komandi kynslóða. Orkukerfin eru í lykilhlutverki þegar tekist er á við loftslagsvána. Fulltrúar Landsvirkjunar, stærsta orkufyrirtækis landsins, hafa sem betur fer talað fyrir nýjum og enn umhverfisvænni nálgunum en áður í orkugeiranum hér á landi og er það vel. Í orkustefnu fyrir Ísland, sem kynnt var og lögð fram í október síðastliðnum, eru mörg góð viðmið þegar kemur að umhverfismálunum og loftslagsmálunum, en í orkustefnunni er líka forðast alfarið við að takast á við erfiðar og krefjandi pólitískar spurningar á borð við stöðu og framtíð stóriðjunnar eða möguleika á útflutningi á hreinni raforku.

Höfum sjálf stjórn á aðstæðum

Það verður að vera til skýr stefna um framtíð raforkuframleiðslu og um stóriðjuna til að við sjálf höfum stjórn á aðstæðunum sem eru að breytast hratt, en ekki láta erlend stórfyrirtæki ráð för, á borð við Rio Tinto sem nýlega hótaði að leggja niður álverið í Straumsvík með nánast einu pennastriki.

Skýr stefna og sýn stjórnvalda í málefnum stóriðju er ekki bara bráðnauðsynleg út frá stöðunni í loftslagsmálum heldur líka út frá atvinnustefnu yfirvalda á tímum atvinnuþrenginga. Við þurfum að skapa ný, græn störf til að vera viðbúin þessari byltingu í framleiðslu á raforku, en ekki að lengja í hengingaról mengandi stóriðju sem er að verða hratt hluti af fortíðinni en ekki partur af framtíðinni. Það er ekki bara óboðlegt að vera stefnulaus gagnvart þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem við höfum undirgengist í loftslagsmálum, heldur – og ekki síður - gagnvart þeim hundruð starfsmanna sem vinna í stóriðju og afleiddum störfum sem þurfa að fá að heyra og vita að þau verða gripin og að framtíðaratvinnumöguleikar þeirra geti breyst og þróast en ekki horfið.

Greinin birtist fyrst á visi.is 31. janúar.