Óskað eftir tilnefningum í Suðvesturkjördæmi

Frestur er til 29. janúar

Auglýst er eftir frambærilegum einstaklingum til að skipa framboðslista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Uppstillingarnefnd starfar samkvæmt lögum flokksins og reglum kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og er falið að leggja fram öflugan og sigurstranglegan lista.

Það er ekki skilyrði tilnefningar að viðkomandi sé skráður í Samfylkinguna og áhugasamir eru hvattir til að tilnefna sjálfa sig. Hvatt er til tilnefningar frambjóðenda af öllum kynjum og þjóðernum. Fullum og algjörum trúnaði er heitið.

Tilnefningar skulu berast á tölvupóstfang uppstillingarnefndar, [email protected], ekki seinna en þann 29. janúarnæstkomandi. Að tilnefningarfresti loknum mun uppstillingarnefnd hafa samband við öll sem hafa verið tilnefnd og kanna áhuga þeirra.

Fyrirspurnum má beina á tölvupóstfang uppstillingarnefndar, sbr. framangreint. Einnig má beina fyrirspurnum símleiðis til formanns nefndarinnar, Jónasar Más Torfasonar, í síma 774-1996.

Uppstillingarnefnd er skipuð eftirfarandi nefndarmönnum:
Jónas Már Torfason, formaður (Kópavogur)
Anna Sigríður Guðnadóttir (Mosfellsbær)  
Kristján Sveinbjörnsson (Garðabær)
Sigrún Sverrisdóttir (Hafnarfjörður)
Þorleifur Örn Gunnarsson (Seltjarnarnes)

Reglur um val á framboðslista í Suðvesturkjördæmi vegna alþingiskosninga 2021 má finna hér.