Akur­eyri er mið­stöð Norður­slóða­mála á Ís­landi

Í dag eru fjölmargar stofnanir og skrifstofur á sviði norðurslóðamála staðsettar á Akureyri á Borgum, sem er með sanni Norðurslóðamiðstöð Íslands.

Hilda Jana Gísladóttir Bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri

Nær aldarfjórðungur er liðinn síðan fyrsta norðurslóðastofnun Íslands, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, hóf starfsemi sína á Akureyri og nær tveir áratugir frá því að nokkrar háskólastofnanir nyrst á norðurhveli jarðar tóku höndum saman og stofnuðu Háskóla norðurslóða, Háskólinn á Akureyri þar á með. Þorsteinn Gunnarsson, þáverandi rektor Háskólans á Akureyri hafði mjög skýra sýn á þeim tíma þegar hann sagði í viðtali við Morgunblaðið árið 1999 „Við stefnum að því að Akureyri verði alþjóðleg miðstöð í málefnum norðurslóða og höfum orðið vör við mikinn áhuga erlendra samstarfsaðila okkar á að tengjast betur íslenskum fræðimönnum og stofnunum. Það er góður grundvöllur fyrir Íslendinga að taka forystu í ýmsum málum er tengjast norðurslóðum, sem er hraðvaxandi málaflokkur.“

Í dag eru fjölmargar stofnanir og skrifstofur á sviði norðurslóðamála staðsettar á Akureyri á Borgum, sem er með sanni Norðurslóðamiðstöð Íslands. Má þar nefna, auk Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar og Háskólans á Akureyri, Norðurslóðanet Íslands, Rannsóknaþing Norðursins, vinnuhópa Norðurskautsráðsins, CAFF og PAME, Alþjóðlega Norðurskauts­vísinda­nefndin og Heimskautaréttarstofnun svo dæmi séu tekin. Þá hefur Akureyrarbær tekið virkan þátt í samstarfi eins og Northern Forum og nú nýlega Arctic Mayors Forum. Allir þessi aðilar hafa til langs tíma unnið að málefnum norðurslóða með einum eða öðrum hætti og á þessum árum hefur orðið mikil breyting á því hvernig við hugsum og ræðum um svæðið. Innan þessarar Norðurslóðamiðstöðvar á Íslandi fara fram metnaðarfullar rannsóknir, auk þess sem í Háskólanum á Akureyri er í boði einstakt nám í heimskautarétti.

Það er engin tilviljun að nágrannalönd okkar í norðri hafa byggt upp sérstakar þekkingarmiðstöðvar í norðurhéruðum sínum, langt frá höfuðborgunum, svo sem Arctic Centre í Rovaniemi, Fram Center í Tromsö og University of Alaska, Fairbanks. Það er ekki einvörðungu táknrænn gjörningur heldur markviss stefna sem er tvíþætt: Í fyrsta lagi, slík miðstöð er valdeflandi fyrir viðkomandi nærsamfélag og getur verið vaxtarbroddur fyrir rannsóknir og menntun. Í öðru lagi, þá er verið að tryggja að málefni norðurslóða eigi sér samastað hjá þekkingarsamfélagi sem hefur skilning á daglegu lífi og aðbúnaði þeirra sem búa á norðurslóðum, víða í fámennum og dreifðum byggðum. Þessi stefna hefur haft jákvæð áhrif fyrir viðkomandi héruð en hún hefur líka haft jákvæð áhrif á samstarf norðurskautsríkjanna átta, til að mynda á vettvangi Norðurskautsráðsins. Þessi stefna leiðir til þekkingar sem er mótuð af aðlögunarhæfni og þrautseigju íbúanna sjálfra – og þótt hér á landi megi stíga mun ákveðnari skref í átt að því að byggja upp með markvissum hætti þekkingarmiðstöð norðurslóðamála á Akureyri, þá höfum við hingað til fylgt þessari sömu stefnu í yfir tuttugu ár.

Sóknaráætlun Norðurlands eystra er stefna íbúa svæðisins sem lýsir því með hvaða hætti við viljum blása til sóknar, en í áætluninni segir meðal annars að hvetja eigi til nýsköpunar í norðurslóðamálum og að Akureyri verði miðstöð fyrir norðurslóðastarfsem í landinu. Stjórn SSNE, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, ákvað á dögunum að setja sinn stærsta styrk, 14 milljónir króna, í áhersluverkefni með fyrir sjónum að efla miðstöð Norðurslóða á Íslandi á Akureyri. Við bindum miklar vonir við að að það fjármagn nýtist vel, sem og að ríkisstjórnin komi að eflingu miðstöðvarinnar með öflugum hætti til framtíðar.

Greinin birtist á vísi.is 16. febrúar.