Framboðslisti Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir Alþingiskosningarnar samþykktur

Framboðslisti Samfylkingarinnar fyrir Alþingiskosningarnar var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta á Fulltrúaráðsfundi Samfylkingarinnar í Reykjavík í dag. 280 manns greiddu atkvæði um listann. 79% staðfestu framboðslistann en 17,5% höfnuðu, 3,5.% skiluðu auðu.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður Velferðarnefndar Alþingis leiðir listann í Reykjavík norður og Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur, leiðir listann í Reykjavík suður. Þá er það sérstök ánægja fyrir reykvíska jafnaðarmenn að Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hafi svarað ákalli þeirra og ósk uppstillingarnefndar um að taka slaginn fyrir annað Reykjavíkurkjördæmið, en hún situr í 2. sæti í Reykjavík suður.

Í öðru sæti í Reykjavík norður situr Jóhann Páll Jóhannsson, blaðamaður og Dagbjört Hákonardóttir, lögfræðingur í því þriðja. Í þriðja sæti í Reykjavík suður situr Viðar Eggertsson, leikstjóri. 

Listarnir tveir eru burðarmiklar enda skarta þeir 44 kröftugum og fjölbreyttum einstaklingum sem eiga það sameiginlegt að vilja vinna að framgangi hugsjóna og málefna Samfylkingarinnar - jafnaðarmannaflokks Íslands.

Reykjavík norður

1.sæti Helga Vala Helgadóttir, alþingismaður

2.sæti Jóhann Páll Jóhannsson, blaðamaður

3.sæti Dagbjört Hákonardóttir, lögfræðingur

4.sæti Magnús Árni Skjöld, dósent

5.sæti Ragna Sigurðardóttir, forseti UJ og læknanemi

6.sæti Finnur Birgisson, arkitekt

7.sæti Ásta Guðrún Helgadóttir, ráðgjafi

8.sæti Ásgeir Beinteinsson, fyrrv. skólastjóri

9.sæti Magnea Marinósdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur

10.sæti Sigfús Ómar Höskuldsson, rekstrarfræðingur og þjálfari

11.sæti Sonja Björg Jóhannsdóttir, deildarstjóri í leikskóla

12.sæti Hallgrímur Helgason, rithöfundur

13.sæti Alexandra Ýr van Erven, ritari Samfylkingarinnar

14.sæti Hlal Jarrah, veitingamaður

15.sæti Inga Auðbjörg Straumland, formaður Siðmenntar og kaospilot

16.sæti Rúnar Geirmundsson, framkvæmdarstjóri

17.sæti Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir, laganaemi

18.sæti Ólafur Örn Ólafsson, veitingamaður

19.sæti Sólveig Ásgrímsdóttir, sálfræðingur og formaður 60+

20.sæti Vilhjálmur Þorsteinsson, hugbúnaðarhönnuður

21.sæti Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar

22.sæti Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra

Reykjavík suður

1.sæti Kristrún Mjöll Frostadóttir, hagfræðingur

2.sæti Rósa Björk Brynjólfsdóttir, alþingismaður

3.sæti Viðar Eggertsson, leikstjóri og verðandi eldri borgari

4.sæti Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi

5.sæti Birgir Þórarinsson, tónlistarmaður

6.sæti Aldís Mjöll Geirsdóttir, lögfræðingur

7.sæti Gunnar Alexander Ólafsson, heilsuhagfræðingur

8.sæti Ellen Calmon, borgarfulltrúi og formaður SffR

9.sæti Viktor Stefánsson, stjórnmálahagfræðingur

10.sæti Elín Tryggvadóttir, hjúkrunarfræðingur

11.sæti Hlynur Már Vilhjálmsson, starfsmaður á frístundaheimili

12.sæt Margret Adamsdóttir, leikskólakennari

13.sæti Axel Jón Ellenarson, grafískur hönnuður

14.sæti Ingibjörg S. Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur

15.sæti Jakob Magnússon, veitingamaður

16.sæti Ingibjörg Grímsdóttir, þjónustufulltrúi

17.sæti Jónas Hreinsson, rafiðnaðarmaður

18.sæti Sólveig Jónasdóttir, mannfræðingur

19.sæti Hildur Kjartansdóttir, listakona

20.sæti Ellert B. Schram, fyrrverandi alþingismaður

21.sæti Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, fyrrverandi alþingismaður

22.sæti Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri