Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021 var samþykktur með miklum meirihluta á fundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í kvöld.
Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður BHM og fyrrverandi þingmaður og ráðherra Samfylkingarinnar leiðir listann, í öðru sæti er þingmaðurinn og rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson. Í þriðja sæti er Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir listfræðingur sem hefur verið ötul baráttukona fyrir réttindum fatlaðs fólk og starfar fyrir Þroskahjálp, fjórða sæti skipar svo Guðmundur Ari Sigurjónsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi og tómstunda- og félagsmálafræðingur
Listinn er skipaður 26 kraftmiklum frambjóðendum, með margs konar reynslu og þekkingu, sem allir eiga það sameiginlegt að vilja vinna að framgangi hugsjóna og málefna Samfylkingarinnar - jafnaðarmannaflokks Íslands og berjast af fullu afli fyrir hagsmunum íbúa kjördæmisins.
“Ég vil þakka félögum mínum í Suðvesturkjördæmi traustið sem þau sýna mér með því að velja mig til að leiða framboðslista Samfylkingarinnar til Alþingis„ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, „Hér er saman kominn mjög öflugur hópur frambjóðenda sem á brýnt erindi við kjósendur í Kraganum“.
Þórunn er formaður BHM, fyrrverandi alþingismaður og umhverfisráðherra. Þórunn er stjórnmálafræðingur frá Háskóla Íslands og Johns Hopkins University, Paul H. Nitze School of Advanced International Studies.
Samfylkingin vinnur nú að því að skipa lista í öllum kjördæmum landsins. Áætlað er að listarnir í Norðaustur-, Suður- og Norðvesturkjördæmi verði fullskipaðir og kynntir fyrir páska.
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi:
- Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM
- Guðmundur Andri Thorsson, alþingismaður og rithöfundur
- Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, baráttukona fyrir réttindum fatlaðs fólks, starfsmaður Þroskahjálpar og listfræðingur
- Guðmundur Ari Sigurjónsson, tómstunda- og félagsmálafræðingur og bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi
- Sólveig Skaftadóttir, alþjóðafræðingur og starfsmaður þingflokks Samfylkingarinnar
- Óskar Steinn Ómarsson, deildarstjóri á leikskóla
- Donata H. Bukowska, kennsluráðgjafi í málefnum nemenda með íslensku sem annað mál í Kópavogi
- Árni Rúnar Þorvaldsson, grunnskólakennari
- Gerður Pálsdóttir, þroskaþjálfi
- Arnar Ingi Ingason, tónlistarmaður
- Sigurþóra Bergsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins headspace
- Sigurjón Gunnarsson, húsasmíðameistari
- Ingibjörg Iða Auðunardóttir, íslenskunemi og forseti Ungra jafnaðarmanna í Garðabæ
- Gylfi Ingvarsson, vélvirki og eldri borgari
- Branddís Ásrún Snæfríðardóttir, meistaranemi í lögfræði
- Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
- Kristín Sævarsdóttir, vörustjóri
- Kolbeinn A. Dalrymple, fjölmiðlamaður
- Hildur Rós Guðbjargardóttir, kennaranemi og starfsmaður Hrafnistu
- Hafsteinn Karlsson, skólastjóri
- Margrét Tryggvadóttir, rithöfundur
- Magnús Norðdahl, lögfræðingur ASÍ og fyrrverandi alþingismaður
- Dóra Hansen, innanhússarkitekt og kennari
- Jónas Sigurðsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ
- Jóna Dóra Karlsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði
- Rannveig Guðmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra