Í dag er vorfundur flokksstjórnar
Í dag er vorfundur flokksstjórnar, hann verður haldinn með rafrænum hætti og hefst kl. 10:00.
Endurskoðuð stefna verður lögð fram til afgreiðslu á flokksstjórnarfundinum. Hér fyrir neðan finnið þið drögin, ásamt eyðublaði sem þarf að fylla út og senda inn hafi þið breytingartillögur sem þið viljið bera upp á fundinum.
TENGJAST FUNDINUM HÉR.
Landsfundarfulltrúar hafa atkvæðisrétt á flokksstjórnarfundi þegar stefnan verður lögð fram til afgreiðslu.
Kjörnir flokksstjórnarfulltrúar hafa atkvæðisrétt í öðrum liðum en varða stefnu flokksins.
DRÖG AÐ FUNDARSKÖPUM FYRIR FUNDINN.
Dagskrá
- Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, setur fundinn.
- Formaður framkvæmdastjórnar kynnir fundarsköp og dagskrá fundarins.
- Heiða Björg Hilmisdóttir kynnir endurskoðaða stefnu flokksins.
- Umræður um stefnuna.
- Ræða formanns.
- Endurskoðuð stefna lögð fram til afgreiðslu.
- Nýtt fyrirkomulag og forysta málefnanefnda kynnt.
- Tillaga framkvæmdarstjórnar um sáttanefnd lögð fram til afgreiðslu.
- Almennar umræður.
- Fundi slitið.
*Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.
*Áætluð fundarlok er kl. 14:00.