Þingflokkur Samfylkingarinnar fordæmir ofbeldisverk gagnvart Palestínumönnum

 Þingmenn Samfylkingarinnar í utanríkismálanefnd Alþingis hafa kallað eftir að utanríkisráðherra Íslands komi hið fyrsta á fund nefndarinnar til að ræða viðbrögð ríkisstjórnar Íslands við ástandinu. 

Þingflokkur Samfylkingarinnar fordæmir harðlega ofbeldisverk Ísraelshers, eins öflugasta hers í heimi, gagnvart saklausum borgurum Palestínu undanfarna daga þar sem 31 barn og 119 fullorðnir hafa nú verið drepin í loftárásunum. Þingflokkurinn harmar líka lát ísraelska borgara, 8 fullorðinna og 2 barna sem látist hafa í eldflaugaskotum frá Gaza-strönd. 

Loftárásir Ísrelshers gagnvart Palestínumönnum eru verstu stríðsátök á svæðinu síðan 2014, jafnvel lengur, og eru skýr og ólíðandi brot á alþjóðalögum og alþjóðasamningum.  Loftáárásirnar bætast við ólöglegt hernám Ísraela á Vesturbakkanum, aðskilnaðarstefnu ísraelska stjórnvaldagagnvart Palestínumönnum og ofsóknir og mannréttindabrotísraelska stjórnvalda gagnvart Palestínumönnum. Því miður virðast nýjustu yfirlýsingar forsætisráðherra Ísraels ekki gefa neina von um vilja hans til friðsamlegra lausna. 

Þessum átökum verður að linna strax og alþjóðasamfélagið verður að gefa skýr og klár skilaboð um að friðsamlegar lausnir í deilunni milli Ísrael og Palestínu er eina lausnin. Þingflokkur Samfylkingarinnar áréttar að tveggja ríkja lausnin er sú lausn sem þarf ávallt að tala fyrir og Ísland hefur alltaf stutt dyggilega enda er það m.a. grunnurinn að skiptingu Jerúsalemborgar sem ísraelsk stjórnvöld hafa virt að vettugi undanfarin ár. 

 Þingmenn Samfylkingarinnar í utanríkismálanefnd Alþingis hafa kallað eftir að utanríkisráðherra Íslands komi hið fyrsta á fund nefndarinnar til að ræða viðbrögð ríkisstjórnar Íslands við ástandinu. 

Ríkisstjórn Íslands verður að vera með afdráttarlaus skilaboð og taka skýra afstöðu með saklausum borgurum Palestínu sem verða fórnarlömb ofureflis eins sterkasta hernaðarríkis heims. 

Ísland á í sérstöku sambandi við Palestínu og var fyrsta vestræna ríkið til að viðurkenna sjálfstæði og fullveldi Palestínu með samhljóða samþykkt Alþingis árið 2011.   Þingflokkur Samfylkingarinnar hvetur ríkisstjórn Íslands til að senda skýr skilaboð til deiluaðila um að alþjóðalög séu virt og að friðsamlegum leiðum sé beitt í deilum Ísraelmanna og Palestínumanna. Hryllilegir atburðir undanfarna daga hafa sýnt að nú er nauðsyn sem aldrei fyrr og þar verður rödd Íslands að vera skýr en aðgerðir verða líka að fylgja orðum og yfirlýsingum.