Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021 samhljóða samþykktur á fundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í kvöld.

Áður hafði verið kosið í þrjú efstu sætin á auknu kjördæmaþingi þann 27. mars sl., uppstillinganefnd sá um að stilla upp á listann frá fjórða sæti. 

Valgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar leiðir listann „Ég er þakklátur fyrir traustið sem félagar mínír í Norðvesturkjördæmi hafa sýnt mér. Ég er fullur bjartsýni, fús til verka og ég hlakka til samstarfsins við meðframbjóðendur mína og Samfylkingarfólk um allt kjördæmið". - Valgarður Lyngdal Jónsson. 

Jónína Björg Magnúsdóttir skipar annað sætið, en hún er mörg kunn fyrir "íspinnalagið" Sveiattan þar sem að hún samdi texta við Mamma þarf að djamma lagið. En Jónína hefur víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi, hefur mikið starfað með fötluðum auk þess að starfa sem stuðningsfulltrúi og kennari, vitavörður, matráður, flokkstjóri og aðstoðað í sauðburði í mörg á að Hömrum í Haukadal. „Hjarta mitt brennur fyrir fólkið í landinu, reynslu þess og lífi hvort sem er í sorg og í gleði.“ - Jónína Björg Magnúsdóttir.

  1. Valgarður Lyngdal Jónsson - Akranes
  2. Jónína Björg Magnúsdóttir - Akranes
  3. Sigurður Orri Kristjánsson - Reykjavík
  4. Edda Katrín Einarsdóttir - Ísafjörður
  5. Ída Finnbogadóttir - Borgarbyggð
  6. Gunnar Rúnar Kristjánsson – Austur Húnavatnssýsla
  7. Ingimar Ingimarsson – Reykhólar
  8. Steinunn Sigurbjörndóttir – Dalasýsla
  9. Guðríður Sigurjónsdóttir - Akranes
  10. Gylfi Þór Gíslason - Ísafjörður
  11. Guðný Friðfinnsdóttir – Sauðárkrókur
  12. Oddur Sigurðarson - Hvammstangi
  13. Salvör Svava G. Gylfadóttir – Borgarbyggð
  14. Guðni Kristjánsson - Sauðárkrókur
  15. Sigurbjörg K. Ásgeirsdóttir - Patreksfjörður
  16. Björn Guðmundsson - Akranes