Inga Björk ræddi við Ísland í dag um foreldrahlutverkið og margt margt fleira

Inga Björk hefur um árabil barist ötullega fyrir mannréttindum og er mikill fötlunaraktivisti.

Hún Inga Björk er okkur Samfylkingarfólki ekki ókunnug enda mikill jafnaðarmaður, bæði er hún fyrrverandi formaður framkvæmdastjórnar og núna skipar hún 3. sæti í Suðvesturkjördæmi. Inga Björk hefur um árabil barist ötullega fyrir mannréttindum og er mikill fötlunaraktivisti. Í gærkvöldi var hún í Íslandi í dag þar sem hún ræddi foreldrahlutverkið og þá umræðu í samfélaginu um foreldra með fatlanir. Við mælum með að allir horfi á viðtalið við Ingu!

 

Sumir þurfa aðstoð við heimanám barnanna sinna, sumir þurfa aðstoð við að sækja börnin í skólann, við þurfum öll aðstoð það er bara mismunandi hvaða aðstoð fólk þarf. Það er mikilvægt að bera virðingu fyrir fólki og vera ekki að áætla hvað fólk getur og getur ekki því við þekkjum fólk ekki neitt. Það að fólk sé fatlað, hinsegin, komi frá tilteknu svæði, trúi á tiltekinn guð segir ekki neitt um manneskjuna, við getum ekki dæmt fólk eftir því hvaða hópi það tilheyrir og það er ekkert öðruvísi með fatlaða foreldra, við erum eins ólík og við erum mörg.“ - Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir.