Verk að vinna - strax

Ný úrræði gegn atvinnuleysi, störf fyrir námsmenn, fjárfestingar í nýsköpun og sumarstyrkir fyrir listafólk um allt land
Nú þegar birtir til, veiran er á undanhaldi og við sjáum fram á að endurheimta loksins eðlilegra líf verður að halda vel á spilunum og tryggja að uppgangurinn framundan verði í þágu okkar allra. Samfylkingin leggur til sex markvissar aðgerðir til að hraða ráðningum, auka virkni á vinnumarkaði, verja afkomuöryggi og leggja grunn að kraftmikilli endurreisn. Ein mikilvægasta aðgerðin er að veittur verði tímabundinn skattafsláttur þegar einstaklingar koma aftur til starfa eftir atvinnuleysi. Einnig leggjum við til að gera fyrirtækjum kleift að ráða nýútskrifaða einstaklinga úr háskóla- og iðnnámi til starfa á ráðningarstyrk til sex mánaða. Leið Samfylkingarinnar er einföld í framkvæmd og felur í sér tvöföldun persónuafsláttar í jafn marga mánuði og einstaklingur hefur verið frá vinnu. Með þessu er komið til móts við heimili sem hafa orðið fyrir miklu tekjufalli og þurft að ganga á sjóði sína eða safna skuldum og einstaklingum gert kleift að vinna sig hraðar upp.
Hvert prósentustig atvinnuleysis kostar ríkissjóð 6 milljarða á hverju ári. Það er sóun sem við höfum ekki efni á. Verkefnið framundan er að koma fólki og fyrirtækjum hratt af stað og þar skiptir hver mánuður máli. Þannig er brýnt að aðgerðirnar komi strax til framkvæmda um leið og við ljúkum bólusetningum, afléttum takmörkunum og blásum til nýrrar sóknar.
Úrræðin sem Samfylkingin leggur til munu borga sig upp á 1-2 árum því þau hraða ráðningum og stuðla þannig að aukinni virkni og verðmætasköpun. Markmiðið er að draga úr langvarandi kostnaði vegna atvinnuleysis og tryggja að ekki verði bakslag þegar sumrinu lýkur. Aðgerðir Samfylkingarinnar eru til þess fallnar að tryggja að samfélagið rati í réttan farveginn í sumar og frjórri jarðvegur verði til staðar fyrir nýja ríkisstjórn að byggja á eftir næstu kosningar.
Í haust lagði Samfylkingin fram Ábyrgu leiðina um vinnu, velferð og græna framtíð með fjölda tillagna. Sumar tillögurnar hefur ríkisstjórnin tekið upp í sínum aðgerðum en við teljum að aðrar hefðu gagnast vel til að koma hjólunum af stað. Nú kynnum við fleiri aðgerðir sem taka mið af breyttum aðstæðum og brýnt er að hrinda í framkvæmd nú í sumarbyrjun.
Sex aðgerðir:
Í fyrsta lagi leggjum við til að stutt verði betur við atvinnuleitendur. Atvinnuleysisbætur hækki upp í 95% af lágmarkslaunum og tímabil atvinnuleysisbóta verði lengt um 12 mánuði.
Í öðru lagi leggjum við til að ráðningarstyrkir verði veittir í 12 mánuði í stað 6 og hærri ráðningarstyrkur geti einnig nýst einstaklingum sem misstu vinnu síðasta sumar. Þannig tryggjum við atvinnulífinu fyrirsjáanleika, komum í veg fer óþarfa hik í ráðningum og gerum fyrirtækjum kleift að gera áætlanir inn í veturinn. Aðgerðin nái einnig til þeirra sem hafa verið vinnulitlir frá 2019.
Í þriðja lagi leggjum við til að veittur verði tímabundinn skattaafsláttur þegar einstaklingar koma aftur til starfa eftir atvinnuleysi. Leið Samfylkingarinnar er einföld í framkvæmd og felur í sér tvöföldun persónuafsláttar í jafn marga mánuði og einstaklingur hefur verið frá vinnu. Með þessu er þeim sem urðu fyrir mestu tekjufalli vegna kórónukreppunnar gert kleift að vinna sig hraðar upp.
Í fjórða lagi leggjum við til ný úrræði fyrir námsmenn og ungt fólk. Sumarstörf til námsmanna verði í 3 mánuði í stað 2,5, störfin nái einnig til einkafyrirtækja, ekki bara opinberra stofnana og félagasamtaka eins og úrræði ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir og námsmönnum verði tryggður réttur til atvinnuleysisbóta í námshléum. Þá verði fyrirtækjum gert kleift að ráða nýútskrifaða einstaklinga úr háskóla- og iðnnámi til starfa á ráðningarstyrk til sex mánaða.
Í fimmta lagi vill Samfylkingin fjölga störfum og styðja við kraftmikið þróunarstarf á sviði nýsköpunar, hugverka- og hátækniiðnaðar með því að festa í sessi tímabundna hækkun endurgreiðslna á rannsóknar- og þróunarkostnaði og auka framlög til Tækniþróunarsjóðs svo öll framúrskarandi verkefni hljóti styrk.
Í sjötta lagi leggjum við til að listafólk verði styrkt í sumar til að halda viðburði um allt land. Komið verði upp miðlægu og hraðvirku umsóknarferli þar sem listafólk og samkomustaðir geti sótt um styrki til viðburðahalds. Með þessu léttum við undir með listamönnum sem hafa orðið fyrir miklu tekjutapi og að miklu leyti setið eftir í aðgerðum ríkisstjórnarinnar og stuðlum að skemmtilegra og litríkara sumri þar sem landsmenn fá notið fjölbreyttrar menningardagskrár um allt land.
Næstu skref:
Samfylkingin mun leggja fram þessar aðgerðir á Alþingi í formi þingsályktunar í vikunni. Samfylkingin leggur áherslu á að málið komist á dagskrá.
Á næstu dögum mun þingflokkur Samfylkingarinnar einnig leggja fram breytingartillögur við fjármálaáætlun þar sem við leggjum til breytta forgangsröðun í ríkisfjármálum næstu fimm árin 2022 - 2026.