Samfylkingarfélagið á Vestfjörðum

Í kvöld voru Samfylkingarfélögin á Sunnan og Norðan verðum Vestfjörðum sameinuð í eitt félag á Vestfjörðum

Aðalfundur Samfylkingarfélagsins á Norðan verðum Vestfjörðum var haldinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í kvöldi. Á fundinum var samþykkt að Samfylkingarfélagið á Sunnan verðum Vestfjörðum sameinist félaginu á Norðan verðum Vestfjörðum. Er því núna eitt Samfylkingarfélag á Vestfjörðum.

Á fundinum var einnig kosin ný stjórn félagsins:

Formaður: Gylfi Þór Gíslason.

Stjórn: Bryndís Friðgeirsdóttir, Emil Emilsson, Guðrún Anna Finnbogadóttir og Lína Tryggvadóttir. 

Í varstjórn voru kosin Gunnhildur Björg Elíasdóttir og Magnús Bjarnason.