Til hamingju með daginn!

Logi Einarsson, formaður, og Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður, senda öllum kæra kveðju!
Kæru félagar!
Í dag fögnum við lýðveldisafmæli Íslands og það er vor í lofti og tilhlökkun í fólki.
Það vill svo til að það eru einnig 100 dagar til næstu Alþingiskosninga í dag. Þann 25. september næstkomandi verðum við vonandi laus við veirufjandann, glaðbeitt og öll búin að taka þátt í árgangamótinu í bólusetningum. Við þurfum þá vonandi ekki að takast á um sóttvarnaraðgerðir í kosningabaráttunni – heldur um það hvernig framtíð við ætlum að byggja hér út úr faraldrinum.
Við þurfum að tryggja að allir komist sem best af stað eftir þennan veirufaraldur, ráðast gegn ójöfnuði hvar sem hann er að finna og koma í veg fyrir að hann aukist samfara þeim umskiptum sem framundan eru vegna loftslagsógnarinnar og tæknibreytinga.
Samfylkingin vill þess vegna fjárfesta í framtíðinni. Í grunninnviðum samfélagsins. Í fólkinu í landinu. Við stefnum hátt og vitum að það krefst vinnu, en við vitum að saman getum við náð árangri!
Kæru vinir, til hamingju með daginn!
Kær kveðja, Logi Einarsson, formaður, og Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður.