Þetta er hægt

Guðmundur Andri fréttabanner,

Alls staðar í kringum okkur er verið að kjósa vinstri stjórnir undir forystu sósíaldemókrata, flokkana sem gert hafa Norðurlöndin að farsælustu ríkjum heims með sinni mildu og mannúðlegu stefnu sem hefur hagsmuni almennings alltaf að leiðarljósi. Hefðbundin sýn hægrimanna beið skipbrot í Kórónaveirufaraldrinum.

Guðmundur Andri, þingamður, rithöfundur
Guðmundur Andri Thorsson Þingmaður

Það blasir við öllum að markaðurinn á ekki úrræði við öllu, hin ósýnilega hönd hans lætur sig endanlega hverfa á krepputímum og einungis sterkt ríkisvald með almannahagsmuni að leiðarljósi er fært um að takast á við kreppu. Þar gilda heldur ekki úreltar hugmyndir um hallalaus fjárlög. Niðurskurður af því tagi sem er að finna í ríkjandi Fjármálaáætlun núverandi ríkisstjórnar upp á hundrað milljarða er til vitnis um að það er alls ekki bara best að kjósa þá flokka sem að henni standa því að þar eru raunveruleg áform um stórfelldan niðurskurð á opinberri þjónustu.

Nú er sögulegt tækifæri að gera hið saman hér og aðrar Norðurlandaþjóðir eru að gera. Þetta er hægt. Við getum myndað stjórn sem tekur almannahagsmuni fram yfir sérhagsmuni; setur á eðlileg veiðigjöld og færir skattkerfið í átt að réttlæti þar sem byrðar eru ekki þyngstar á launafólki en léttastar á stóreignafólki; horfist í augu við fjárþörf í heilbrigðiskerfinu en leysir vandann ekki með biðlistum; býr í haginn fyrir fjölbreytt atvinnulíf með nýsköpun og sísköpun; stórbætir í raun og veru smánarleg kjör öryrkja og eldra fólks; léttir undir með barnafjölskyldum; rækir skyldur okkar í loftslagsmálum.

Þetta er hægt.

Það er ekki náttúrulögmál að flokkur með 20-24% fylgi ráði för í ríkisfjármálum með tilheyrandi íhaldsúrræðum. Sjálfstæðisflokkurinn á ekki að hafa neitunarvald um öll umbótamál sem snúa að almenningi. Við getum virkjað eldmóðinn, heilindin og hugsjónirnar sem kjósendur umbótaflokkanna frá miðju og til vinstri búa yfir og við getum skapað úr þessu mikla afli eina sterka, kraftmikla og flotta stjórn sem starfar í þágu almannahagsmuna. Þetta er nefnilega vel hægt. Við getum gert eins og aðrar Norðurlandaþjóðir eru að gera allt í kringum okkur og gefið hægri mönnum langþráð frí og tekið af þeim lyklavöldin í Stjórnarráðinu. Til þess að leiða slíkt starf eru sósíaldemókratar best fallnir. Samfylkingin er nefnilega samfylking.

Greinin birtist á vísi.is 24. sept.