Við getum þetta ef við viljum

Helga Vala fréttabanner

Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna er hafin. Þangað streyma um 25 þúsund fulltrúar frá 200 löndum enda verkefnið það mikilvægasta af öllum - að bjarga heiminum frá lífsstíl okkar og gera plánetuna jörð að búsetustað allra lífvera áfram.

Helga Vala Helgadóttir Þingmaður

 Þetta er vissulega dramatískt, en engu að síður staðreynd. Ef við keyrum samfélögin áfram með sama hætti næstu 30 ár og síðustu 30 þá munum við hægt og rólega útrýma lífverum og búsetusvæðum. Vísindin hafa sýnt okkur þetta og kennt okkur ýmsar leiðir til að koma í veg fyrir slíkt neyðarástand og þar verður mannkynið allt að taka höndum saman. Og það er hægt, ef við bara viljum.

Hér á landi heyrast þær raddir að við séum svo smá og fá að okkar framlag skipti ekki máli. Það er alrangt því losun okkar á gróðurhúsalofttegundum er hluti af heildinni. Stórt framlag okkar í loftslagsmálum er líka að jafn ríkt land og Íslandi sýni í verki að það sé tilbúið til að gera allt sem þarf og verði þannig öðrum þjóðum fyrirmynd. Sem betur fer hafa ríki heims samið um ákveðnar leikreglur varðandi útreikning losunar og útdeilingu kvóta og við verðum að muna að með því að standa ekki við loforð okkar um samdrátt í losun þurfum við að greiða háar sektir. Það er því hvort tveggja samfélagslega og efnahagslega mikilvægt að standa við loforð okkar um samdrátt á losun, standa við loforð um kolefnishlutleysi. Við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að minnka losun.

Stjórnvöld þurfa að draga úr notkun einkabíla með stóreflingu almenningssamgangna um allt land því það er fjárfesting til framtíðar. Kröftugar almenningssamgöngur þurfa að vera Borgarlína, sem má hraða með afgerandi hætti, Keflavíkurlína sem myndi minnka vægi einka- og rútubíla milli Suðurnesja og Höfuðborgarsvæðis og svo landlína sem þjónar Vestulandi, Vestfjörðum, Norðurlandi, Austurlandi og Suðurlandi. Stjórnvöld verða að vera stórtæk og skapa almenningi alvöru valkost við einkabílinn um allt land með úrlausnum og niðurgreiðslum á ferðum. Þau sem myndu nýta almenningssamgöngur daglega fengju aukinn afslátt og með því að gera ferðir gjaldfrjálsar fyrir börn og ungmenni ölum við upp nýjar kynslóðir notenda almenningssamgangna.

Stjórnvöld þurfa líka að styðja með mynduglegum hætti íslensk fyrirtæki eins og Carbfix sem vinna að varanlegri kolefnisbindingu í jörðu. Kolefnisförgun er þannig markviss og nauðsynleg leið fyrir okkur til að ná loftslagsmarkmiðum okkar og er framúrskarandi tæknilausn sem byggir á traustum vísindalegum grunni sem nú þegar er að hafa mikil áhrif. Þar er hægt að gera stærri hluti ef stjórnvöld hafa áhuga á.

Við á Íslandi getum gert margt en til þess þarf samstíga ríkisstjórn sem þorir að fara í stórtækar aðgerðir.

Greinin birtist í Morgunblaðinu 2. nóv. 2021