Kveðja frá Loga

Kæru félagar, haustið hefur liðið hratt og senn líður að jólum. Kosningarnar í september voru okkur jafnaðarmönnum vonbrigði - og raunar mörgum þeim sem aðhyllast félagslegt réttlæti og frjálslyndi.

Logi Einarsson Þingflokksformaður

Haustið hefur liðið hratt og senn líður að jólum. Kosningarnar í september voru okkur jafnaðarmönnum vonbrigði - og raunar mörgum þeim sem aðhyllast félagslegt réttlæti og frjálslyndi.

Þrátt fyrir það var sá möguleiki fyrir hendi að mynda ríkisstjórn frá miðju til vinstri; félagshyggjukosturinn var raunhæfur möguleiki sem að formaður Vinstri grænna hafnaði, til þess eins að endurnýja samstarf við Sjálfstæðisflokkinn.

Eftir tveggja mánaða bið birtu ríkisstjórnarflokkarnir þrír loks nýjan stjórnarsáttmála, litlausan og íhaldssaman. Hvergi minnst á fátækt og varla á ójöfnuð; þúsundum barna sem búa við skort, tekjulágu fólki, öryrkjum og öldruðum ekki gefin mikil von um bjartari tíma. Í byrjun gladdist ég þó að sjá áherslu lagða á loftslagsmálin, tæknibreytingar og öldrun þjóðar - en þau fögru fyrirheit voru slegin köld með framlagningu fjárlaga. Þar kom hið rétta andlit ríkisstjórnarinnar í ljós; engin aukning til loftslagsmála umfram það sem gert var ráð fyrir, niðurskurður á framlögum til mennta- og menningarmála og enga aukningu að sjá í húsnæðisuppbyggingu þrátt fyrir mikla vöntun. 

Heimsfaraldurinn heldur áfram að leika okkur grátt. Vegna fjölda smita í samfélaginu varð að fresta mikilvægum flokksstjórnarfundi sem átti að halda í nóvember. Það bíður því nýs árs að hittast í persónu og ræða stöðuna í stjórnmálum og framtíð jafnaðarstefnunnar.

Verkefnin eru ærin og erindi jafnaðarmanna jafn mikilvægt og áður. Stjórnvöld hafa ríku hlutverki að gegna í baráttunni gegn ójöfnuði; réttlátt skattkerfi, félagslegt húsnæði, barnabætur og öflugar almannatryggingar skipta máli. Mikil misskipting dregur úr verðmætasköpun, skerðir lífsgæði og rýfur samkennd. Þá þarf að styrkja stoðir heilbrigðisþjónustunnar, vinna að nýrri sátt í fiskveiðistjórnunarkerfinu, mæta áskorunum framtíðarinnar og hamfarahlýnunar með stefnufestu og fjárfestingu, sækja fram í menntamálum og byggja upp atvinnulíf sem er fjölbreyttara, alþjóðlegra og grænna.

Við jafnaðarmenn gefumst því ekki upp þótt móti blási heldur höldum ótrauð áfram til sigurs í sveitarstjórnarkosningunum í vor og Alþingiskosningunum næst - hvort sem þær verða eftir eitt ár eða fjögur.