Mælti fyrir frumvarpi um stjórn fiskveiða

Oddný Harðardóttir mælti í dag fyrir frumvarpi á Alþingi um stjórn fiskveiða.

Frumvarpinu er ætlað að vinna gegn samþjöppun í sjávarútvegi og minnka fjárhagslega áhættu samfélagsins af því að aflaheimildir safnist á fárra hendur og að tengsl á milli raunverulegra eigenda fyrirtækja séu þannig að fall eins eða fjárhagslegir erfiðleikar hafi áhrif á stöðu annars.  Það er mikilvægt að frumvarpið fái framgang í þinginu, sérstaklega í ljósi þess að það eina sem ríkisstjórn hyggst gera þegar kemur að sjávarútvegsmálum er að láta þetta stóra deiluefni daga uppi í enn einni nefndinni. Þó margt hafi tekist vel í sjávarútvegi hér á landi þá vantar enn töluvert á að sátt sé um kerfið. Það vantar að auki réttlætið og fullvissuna um að samfélagið allt njóti nægilega góðs af auðlindanýtingunni. Þetta frumvarp er stórt skref til þess að skapa betra jafnvægi og meiri sátt um atvinnugreinina og nýtingu auðlinda.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, þess efnis að skilgreint verði nánar hvað felist í hugtökunum „tengdir aðilar“ og „raunveruleg yfirráð“.

  Í fyrsta lagi er lagt til að aðilar teljist tengdir ef annar aðilinn á að minnsta kosti 25% hlutafjár, stofnfjár í hinum eða fer með 25% atkvæðisréttar. Það er í samræmi við lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og lög um skráningu raunverulegra eigenda sem samþykkt voru í þinginu fyrir um tveimur árum.  

Í öðru lagi er lagt til að til tengdra aðila teljist lögaðilar sem stjórnað er af sömu einstaklingum og jafnframt hjón, sambúðarfólk, börn þeirra, fósturbörn og lögaðilar í þeirra eigu.

Í þriðja lagi er lögð til ítarlegri skilgreining á því hvað felist í raunverulegum yfirráðum en kveðið er á um í núgildandi lögum um stjórn fiskveiða. Er lagt til að með raunverulegum yfirráðum sé átt við rétt sem skapast með samningum eða einhverjum þeim hætti sem gerir aðila kleift að hafa afgerandi áhrif á félag; með eignarhaldi eða rétti til að nota eignir félags, allar eða að hluta, eða með rétti til að hafa afgerandi áhrif á samsetningu, atkvæðagreiðslu eða ákvarðanir stofnanafélags.

Loks felur frumvarpið í sér málsmeðferð Fiskistofu þegar samanlögð aflaheimild einstakra aðila og tengdra aðila er yfir 6% af heildarverðmæti allra tegunda afla sem sæta takmörkunum á leyfilegum heildarafla. Lagt er til að í þeim tilvikum beri að tilkynna til Fiskistofu hverja þá ráðstöfun sem leiðir til hækkunar á aflahlutdeild áður en slík lögskipti koma til framkvæmda.

Óskýrleiki á skilgreiningum á „tengdum aðilum“ í lögum um stjórn fiskveiða hefur orðið til þess að Fiskistofa hefur ekki treyst sér til að vinna eftir lögunum við eftirlit með því hvort einstakir aðilar fari með yfir 12% af úthlutuðum kvóta. Upplýsingar um raunverulega eigendur er nú þegar opinberar og aðgengilegar almenningi. Þannig getur almenningur fylgst með raunverulegum eigendum fyrirtækja sem fénýta auðlindir þjóðarinnar.

 „Ítrekað hefur verið bent á að of sterk yfirráð fárra aðila yfir fiskveiðiauðlindinni hafi þær afleiðingar að frekari völd safnist á hendur þeirra í þjóðfélaginu en heilbrigt getur talist. Völd þeirra og áhrif í krafti auðs geti orðið skaðleg og áhrif þeirra á ákvarðanir í stjórnkerfinu og á vettvangi stjórnmála geti unnið gegn almannahag. Samþjöppun kemur í veg fyrir samkeppni og hamlar nauðsynlegri endurnýjun. Tíu stærstu útgerðirnar fara með meira en helming kvótans og tuttugu stærstu útgerðirnar ráða yfir meira en 70% kvótans. Við þetta bætist svo eignarhald þessara útgerðarisa í öðrum útgerðum. Stór útgerðarfyrirtæki hér á landi eru í raun rekin sameiginlega og hafa samráð um veiðar, vinnslu og sölu afurða.“

-Oddný Harðardóttir, flutningsmaður frumvarpsins

Með frumvarpinu er verið að hrinda í framkvæmd tillögum um samþjöppun aflaheimilda sem verkefnastjórn um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni skilaði til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 30. desember 2019. Verkefnastjórninni var m.a. falið að bregðast við ábendingum í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar um eftirlit Fiskistofu er varðar samþjöppun aflaheimilda. Oddný Harðardóttir, fyrsti flutningsmaður frumvarpsins átti sæti í stýrihópnum.