Mikil­vægi kennslu list- og verk­greina í far­aldrinum

Ellen, banner

Það er svo mikilvægt að börnin upplifi að það sé gaman í skólanum og í öllum þessum aðþrengingum að þau upplifi rými til að skapa, vera og stækka.

Ellen
Ellen Calmon Borgarfulltrúi og fulltrúi í menningar-, íþrótta- og tómstundaráði

Ég hef verið hugsi í öllum þessum takmörkunum sem við nú búum við og þá ekki síst varðandi börn og skólastarf. Börnin okkar eru nú þegar að upplifa gríðarlegar takmarkanir á fjölda sviða og meðal annars í skólastarfi þar sem sumar kennslustundir hafa verið felldar niður. Takmarkanirnar í lífum barna að undanförnu hafa verið margs konar, einhver hafa þurft að sæta því að mega bara leika við bekkjarfélaga en ekki skólafélaga í öðrum bekkjum. Þau hafa orðið af fjölskyldustundum til dæmis í kringum jólin þar sem margar fjölskyldur héldu minni jól, færri komu saman. Það vantaði jafnvel ömmu og afa sem alltaf eru með. Þau hafa orðið af afmælisveislum, ferðum sem áætlaður voru hafa ekki verið farnar og íþróttamót hafa verið felld niður. Sum börn hafa farið marg oft í sóttkví ásamt því að þurfa að sæta einangrun. Listnám hvers konar hefur verið fellt niður, frestað eða kennt með breyttu sniði svo sem tónlistarkennsla sem hefur verið færð yfir á netið en skilar engan veginn sama krafti og skynjun. Svona mætti lengi telja. Vonbrigði á vonbrigði ofan. Þetta tekur á litlar sálir og ég hef oft þurft að viðurkenna vanmátt minn gagnvart veirunni og þurft að hugga drenginn minn og útskýra fyrir honum að þarna fáum við engu um ráðið. Þá er ég viss um að skjátími barna hafi almennt aukist og örvun annars konar en bóklestur, skjár og kyrrsetuverkefni hefur orðið minni.

Útrás fyrir tilfinningar

Vegna alls þessa er kennsla list- og verkgreina ásamt íþróttakennslu gríðarlega mikilvæg á tímum faraldursins svo þess sé gætt að börnin fái annars konar örvun en þá eina að sitja yfir bóklegu námi, án þess að ég geri lítið úr því. En list- og verkgreinar og skapandi skólastarf veitir börnum tækifæri til að tjá tilfinningar sínar, finna sér leiðir til túlkunar á þeim og opna hugann fyrir nýjum víddum og sköpun. Námið getur hjálpað þeim að fá útrás, leita huggunar, samsama sig, ýta undir tilfinningar eða sefa þær. Ég tel því kennslu list- og verkgreina sérstaklega mikilvæga nú á tímum faraldursins.

Betri líðan betri námsárangur

Það er svo mikilvægt að börnin upplifi að það sé gaman í skólanum og í öllum þessum aðþrengingum að þau upplifi rými til að skapa, vera og stækka. Ef börnum líður ekki vel í skólanum og þau upplifa ekki að það sé gaman þá dregur einfaldlega úr námsárangri. Það er þekkt.

Starfsfólk skóla- og frístundamála á hins vegar heiður skilinn fyrir að standa vörð um börnin okkar og allt það ómælda og óeigingjarna starf sem þau hafa lagt af mörkum við að halda úti óslitnu, faglegu starfi og þjónustu við börnin okkar í faraldrinum.

Greinin birtist á visi.is 12. janúar 2022.