Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akureyri

Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar var samhljóða samþykktur á á félagafundi Samfylkingarinnar á Akureyri í gærkvöldi.

Hilda Jana Gísladóttir núverandi oddviti leiðir listann, annað sætið skipar Sindri Kristjánsson yfirlögfræðingur. Í þriðja sætier Elsa María Guðmundsdóttir grunnskólakennari, fjórða sæti skipar svo Ísak Már Jóhannesson umhverfisfræðingur. 

Ég tel að Samfylkingin tefli fram öflugum lista jafnaðarfólks, sem er reiðubúið að leggja sitt að mörkum til að gera gott samfélag betra. Við eigum að stefna ótrauð að sjálfbærri sókn Akureyrarbæjar, sem byggir á hugmyndafræði um jöfnuð í fjölbreyttu samfélagi, þar sem ekkert okkar er skilið eftir.“ - Hilda Jana Gísladóttir

 „Framundan eru spennandi tímar á Akureyri og gífurleg sóknarfæri blasa við okkar sveitarfélagi. Áframhaldandi uppbygging á öllum sviðum  mun tryggja betri og skilvirkari þjónustu. Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við þau krefjandi verkefni í umboði bæjarbúa.” – Sindri Kristjánsson.

Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar

1.      Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi

2.      Sindri Kristjánsson, yfirlögfræðingur

3.      Elsa María Guðmundsdóttir, grunnskólakennari

4.      Ísak Már Jóhannesson, umhverfisfræðingur

5.      Kolfinna María Níelsdóttir, ferðamálafræðingur

6.      Hlynur Örn Ásgeirsson, hugbúnaðarsérfræðingur

7.      Rannveig Elíasdóttir, hjúkrunarfræðingur

8.      Jóhannes Óli Sveinsson, nemi

9.      Valdís Anna Jónsdóttir, viðskiptafræðingur

10.  Sigríður Stefánsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi, 

11.  Orri Kristjánsson, sérfræðingur

12.  Unnar Jónsson, forstöðumaður

13.  Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, fyrrverandi alþingismaður

14.  Sveinn Arnarsson, byggðafræðingur

15.  Valgerður S. Bjarnadóttir, nýdoktor

16.  Reynir Antonsson, stjórnmálafræðingur

17.  Hekla Sólbjörg Gunnarsdóttir, nemi

18.  Heimir Haraldsson, náms- og starfsráðgjafi

19.  Margrét Kristín Helgadóttir, lögfræðingur

20.  Jón Ingi Cæsarsson, formaður Póstmannafélags Íslands

21.  Sigríður Huld Jónsdóttir, skólameistari 

22.  Hreinn Pálsson, lögmaður