Niðurstöður flokksvals Samfylkingarinnar í Hafnarfirði

Flokksval Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningar í Hafnarfirði fór rafrænt fram í dag laugardaginn 12. febrúar.
Kosning í sex efstu sætin er bindandi fyrir uppstillingarnefnd að teknu tilliti til reglna Samfylkingarinnar um að ekki halli á hlut kvenna.
Niðurstöður í efstu sex sætin voru eftirfarandi:
- Guðmundur Árni Stefánsson með 537 atkvæði í 1. sæti
- Sigrún Sverrisdóttir með 290 atkvæði í 1-2. sæti
- Árni Rúnar Þorvaldsson með 485 atkvæði í 1-3. sæti
- Hildur Rós Guðbjargardóttir með 351 atkvæði í 1-4. sæti
- Stefán Már Gunnlaugsson með 429 atkvæði í 1-5. sæti
- Kolbrún Magnúsdóttir með 434 atkvæði í 1-6. sæti
Á kjörskrá voru 2.225 og greiddur 962 atkvæði eða 43%.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðjón Karl Arnarson
formaður kjörstjórnar Samfylkingarfélagsins í Hafnarfirði
Sími: 895-8679
