Framboðslisti fyrir borgarstjórnarkosningar

Framboðslisti Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar í vor var samþykktur samhljóða á fundi Fulltrúarráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík í gær.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, leiðir listann en hann var efstur í flokksvalinu sem haldið var nú í febrúar. Á eftir Degi á listanum koma Heiða Björg Hilmisdóttir, Skúli Helgason, Sabine Leskopf, Hjálmar Sveinsson og Guðný Maja Riba. Er sú röð í samræmi við niðurstöðu flokksvalsins.

Listinn samanstendur af fjölbreyttum hópi öflugra einstaklinga. Öll eiga þau þó sameiginlegt að brenna fyrir borgarmálin.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður uppstillingarnefndar, segir að nefndin sé mjög stolt af framboðslistanum: „Hann endurspeglar fjölbreytileika borgarbúa vel og myndar öfluga liðssveit fyrir borgarstjórann okkar, Dag B. Eggertsson og alla borgarfulltrúa flokksins. Við ætlum okkur að tryggja Samfylkingunni góða kosningu í vor.“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að á listanum sé fólk með mikilvæga reynslu af fjölbreyttum sviðum samfélagins, bæði fólk með reynslu af stjórn borgarinnar en líka ný og fersk andlit sem fengur er að. „Listinn er sigurstranglegur, hann er þéttskipaður fólki úr öllum áttum sem elskar Reykjavík og vill halda áfram að sækja fram og þróa borgina sem græna, fjölbreytta borg með öflugri þjónustu þar sem hugað er að velferð og tækifærum til framtíðar og pláss er fyrir alla“ segir Dagur.

Hér má sjá listann í heild sinni:

1. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri

2. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar

3. Skúli Þór Helgason, borgarfulltrúi

4. Sabine Leskopf, borgarfulltrúi

5. Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi

6. Guðný Maja Riba, kennari

7. Sara Björg Sigurðardóttir, Breiðhyltingur og stjórnsýslufræðingur

8. Birkir Ingibjartsson, arkítekt

 9. Ellen Calmon, borgarfulltrúi og fyrrverandi formaður ÖBÍ

10. Ragna Sigurðardóttir, unglæknir og borgarfulltrúi

11. Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara

12. Aron Leví Beck, myndlistarmaður og málarameistari

13. Alondra Silva Muñoz, markaðsstjóri

14. Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, lögfræðingur

15. Ólöf Helga Jakobsdóttir, matreiðslumeistari

16. Stein Olav Romslo, grunnskólakennari

17. Berglind Eyjólfsdóttir, formaður öldungaráðs Reykjavíkur

18. Þorleifur Örn Gunnarsson, kennari

19. Thomasz Chrapek, tölvunarfræðingur og formaður ProjektPolska.is

20. Elva María Birgisdóttir, forseti Nemendafélags MH

21. Davíð Sól Pálsson, deildarstjóri á leikskóla

22. Valgerður G. Gröndal, bókmenntafræðingur og deildarstjóri á leikskóla

23. Brandur Bryndísarson Karlsson, frumkvöðull og ramtíðarfræðingur

24. Aðalheiður Franzdóttir, framkvæmdastjóri Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur

25. Örn Kaldalóns Magnússon, formaður DM félags Íslands

26. Hjördís Sveinsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun

27. Ingiríður Halldórsdóttir, öryrki

28. Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams, veitingamaður og tónlistarstjóri

29. Elísabet Unnur Gísladóttir, háskólanemi

30. Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri

31. Frigg Thorlacius, lögfræðingur hjá Umhverfisstofnun

32. Sigfús Ómar Höskuldsson, rekstrarfræðingur og knattspyrnuþjálfari

33. Ragnhildur Berta Bolladóttir, verkefnastjóri hjá Sjúkraliðafélagi Íslands

34. Rúnar Geirmundsson, framkvæmdastjóri

35. Ingibjörg Grímsdóttir, kjaramálafulltrúi hjá Eflingu

36. Jódís Bjarnadóttir, sérfræðingur í málefnum flóttafólks

37. Þóroddur Þórarinsson, þroskaþjálfi 

38. Inga Auðbjörg Straumland, formaður Siðmenntar og kaospilot

39. Margrét Pálmadóttir, söngkona

40. Hákon Óli Guðmundsson, Rafmagnsverkfræðingur

41. Barbara Bruns, ráðgjafi í málefnum innflytjenda

42. Gísli Víkingsson, sjávarvistfræðingur

43. Björk Vilhelmsdóttir, félagsráðgjafi og fyrrv. borgarfulltrúi

44. Oddný Sturludóttir, menntunarfræðingur og fyrrv. borgarfulltrúi

45. Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri

46. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri