Mál að linni

Oddný G. Harðardóttir skrifar um söluna á Íslandsbanka

Er stóra plan ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur að ganga upp? Á síðasta kjörtímabili veikti ríkisstjórnin með skipulegum hætti afar mikilvægar eftirlitsstofnanir í íslensku samfélagi. Stjórnarflokkarnir samþykktu lög sem eru til þess fallin að veikja Fjármálaeftirlitið. Samkeppniseftirlitið var einnig veikt með lagasetningu og tennurnar dregnar úr Skattrannsóknarstjóra með því að leggja embættið niður og renna því undir Skattinn. Og nú er búið að selja meiri hluta í Íslandsbanka. Stjórnarflokkarnir hafa búið vel í haginn fyrir þá sem sýsla með mikla peninga.

Fyrir sumum er Alþingi Íslendinga staður þar sem stjórnmálamenn leika pólitíska leiki sem ætlaður er fáum og fyrir fáa útvalda.

Slíkir leikir geta sannarlega dregið dilk á eftir sér þannig að almenningur beri skaðann. Skýrt dæmi um það er einkavæðing bankanna sem leiddi til bankahrunsins haustið 2008. Einkavæðing Íslandsbanka sem nú stendur yfir er leikur af sama toga. Niðurstaða nýjasta útboðsins er á allra vörum og ásakanir um spillingu eru háværar.

Það er hlutverk okkar alþingismanna og ráðherra að gæta að hag almennings. Það var ekki gert þegar veittur var afsláttur af hlutunum í Íslandsbanka og þeir færðir skyldmennum fjármálaráðherrans, fjárfestingarsjóðum sem keyptu og seldu strax í fyrra útboði og fólki sem vann við útboðið svo dæmi séu tekin sem ósætti er um. Og nokkrum lykilpersónum hrunsins sem hafa sannarlega reynslu af bankarekstri líkt og sár reynsla almennings er um og flokkast nú sem hæfar til að eignast hann á ný.

Almenningi er nóg boðið. Fjármálaráðherrann sem ber samkvæmt lögum alla ábyrgð á söluferlinu og samþykkt kauptilboðanna, er rúinn trausti. Vinstri grænir benda í allar aðrar áttir en á þann sem ábyrgðina ber af ótta við að missa ráðherrastóla og Framsókn er klofin í afstöðu sinni.

Nú er mál að linni. Stjórnarflokkarnir verða að átta sig á að almenningur lætur þá ekki leika svona illilega á sig – aftur.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu