Guðmundur Ari leiðir lista Samfylkingarinnar og óháðra

Guðmundur Ari Sigurjónsson leiðir lista Samfylkingar og óháðra á Seltjarnarnesi sem samþykktur var á fundi Samfylkingar Seltirninga og óháðra í gær 3. apríl.

Samfylkingin bauð fram sér í síðustu kosningum en fer nú fram ásamt óháðum Seltirningum sem vilja leggja sitt að mörkum við að bæta þjónustu við íbúa á Seltjarnarnesi.

Í öðru sæti listans er Sigurþóra Bergsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins. Í þriðja sæti Bjarni Torfi Álfþórsson, framkvæmdastjóri Specialisterne á Íslandi. Í fjórða sæti er Karen María Jónsdóttir, skrifstofustjóri á þjónustu og nýsköpunarsviði hjá Reykjavíkurborg. Í fimmta sæti Guðmundur Gunnlaugsson, rekstrarstjóri Quest Portal.

„Við erum afar ánægð með þennan öfluga lista sem skipaður er af reynslumiklum einstaklingum í bland við einstaklinga sem eru að stíga sín fyrstu skref í sveitarstjórnarmálum en hafa sterka tengingu við sveitarfélagið og þjónustu þess. Við erum að klára kjörtímabil þar sem ánægja íbúa með þjónustu bæjarins mældist í sögulegu lágmarki í ánægjukönnun Gallups, skuldir hafa margfaldast og tekjur hvers árs duga ekki til að halda úti núverandi þjónustustigi. Við bjóðum fram skýran valkost sem endurspeglar raunverulega breidd samfélagsins, valkost fyrir fólk sem vill forgangsraða í þágu þjónustu við alla íbúa sveitarfélagsins. Við erum tilbúin að hlusta á raddir fagfólks og ráðast í nauðsynlega uppbyggingu á innviðum í bæjarins.“ Segir Guðmundur Ari oddviti XS og óháðra á Seltjarnarnesi. 

 

Hér má sjá listann í heild sinni:

1. sæti Guðmundur Ari Sigurjónsson – Verkefnastjóri og bæjarfulltrúi

2. sæti Sigurþóra Bergsdóttir – Framkvæmdarstjóri og bæjarfulltrúi

3. sæti Bjarni Torfi Álfþórsson – Framkvæmdarstjóri og bæjarfulltrúi

4. sæti Karen María Jónsdóttir – Skapandi stjórnandi

5. sæti Guðmundur Gunnlaugsson – Rekstrarstjóri

6. sæti Eva Rún Guðmundsdóttir – Táknmálstúlkur

7. sæti Björg Þorsteinsdóttir – Grunnskólakennari

8. sæti Stefán Árni Gylfason – Framhaldsskólanemi

9. sæti Bryndís Kristjánsdóttir – Leiðsögumaður

10. sæti Stefán Bergmann – Fyrrverandi dósent

11. sæti Magnea Gylfadóttir – fótaaðgerðafræðingur

12. sæti Ólafur Finnbogason – Starfsþróunar- og öryggisstjóri

13. sæti Hildur Ólafsdóttir – Verkfræðingur

14 . sæti Árni Emil Bjarnason – Prentsmiður